Kirkjuritið - 01.01.1957, Qupperneq 50
44
KIBKJUBITIÐ
ar Ijósar og efnið þrungið anda trúar og siðgæðis. Get ég vart hugsað mér
það barn, sem byrjar á lienni, að það lesi hana ekki alla. Hygg ég einnig,
að hvert barn batni við þann lestur, og \'il því hvetja foreldra til þess
að gefa hana börnum sínum, t. d. í afmælisgjöf eða jólagjöf. Aurunum, sem
til þess fara, er vissulega vel varið.
Hafi báðir þökk fyrir þessa litlu og fallegu bók, höfundur og útgefandi.
A. G.
t---------T--------------------"t
--------| ErMnr frcttír [--------------------------------
—„„—«—„„—„„—„„—„„—„„——*
Aukin fj'árráð norsku kirkj'unnar. Kirkjustjómin norska leggur til
við þingið, að það Jeggi 8 milljónir króna í sjóð til styrktar kirkjulegum
störfum. I sama tilgangi er áætlað að safna með frjálsum framlögum um
einni milljóna króna á ári.
Víða er gripið til tækninnar.Tveir prestar sveimuðu ekki alls fyrir
löngu í flugvél yfir húsaþökunum í úthverfum Indianapolis í Ameríku.
Voru þeir að taka myndir í þ\’í skyni að geta valið ný kirkjustæði.
Frá finnsku kirkjunni. Finnska kirkjan hefir verið mjög athafna-
söm á undangengnum árum. Ný Biblíuþýðing var samþykkt á þingi henn-
ar 1938. Sama ár eignaðist hún nýja sálmabók finnska, og fáum árum
síðar aðra sænska. Loks kom út nýtt barnalærdómskver 1948. Nýrrar helgi-
siðabókar má \’ænta innan skamms.
Ordass biskup stendur enn við stjómvöl lútersku kirkjunnar á Ung-
verjalandi og stýrir í frelsisátt. Mikið viðreisnarstarf er unnið og megin
áherzla lögð á kristilegt æskulýðsstarf. Náið samband er í milli biskups og
Lúterska heimssambandsins.
Áströlsk sendinefnd með H. W. K. Mowll höfuðbiskup í broddi
fylkingar fór til Kína í nóvember. Lætur hún vel yfir stöðu kirkju og kristni
þar í landi. Telur, að þar ríki algert trúfrelsi og kristileg starfsemi sé ó-
liindmð. Kristnir menn, sem fúsir séu til að styðja stjómarstefnuna, eigi að-
gang að embættum jafnt og aðrir. Verði að viðurkennast, að hollast sé hverri
þjóð að búa að innlendum starfsmönnum innan kirkju sem utan. Sumir
trúboðar hafa f\ rr og síðar misnotað stöðu sina til áróðurs og ásælni í