Kirkjuritið - 01.01.1957, Side 52
46
KIEKJURITIÐ
+—-------------------------
— ---------Tnnlendnr frétlir
•i*-----------....---....-....-....-III.--
Fagur siður. Mörg undanfarin ár hefir það verið föst venja Spari-
sjóðs Svalbarðsstrandar að gefa hverju bami, sem þar fæðist, í skírnar-
gjöf sparisjóðsbók með 50 kr. innstæðu. Þessi fagri siður ætti að verða
öðrum til eftirbreytni.
Gamla kirkjan að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd fauk til á grunn-
inum í ofviðri 20. f. m. Hún brotnaði þó lítt, nema reykháfur hennar
hmndi. Messur fara nú fram í prestsseturshúsinu, því að nýja kirkjan er
ekki enn fullgerð.
Fögur æskulýðssamkoma var haldinn í Gamla Bíó 16. f. m. Séra
Bragi Friðriksson flutti nokkur ávarpsorð, en söngflokkar barna sungu und-
ir stjóm kennara síns ýms jólalög. Aðalsöngstjórinn var Ingólfur kennari
Guðbrandsson. Hljómsveit lék undir suma sálmana. Að lokum var sam-
eiginleg bænagerð. Þetta er fyrsta samkoman á vegum æskulýðsstarfsins
nýja í Reykjavík, og þótti hún mjög vel takast.
Nýja testamentisútgáfu Hins íslenzka Biblíufélags er nú að fullu
lokið. Þýðingin er hin sama og áður, nema hvað vikið hefir verið til betra
máls á stöku stað, þar sem það hefir þótt óhjákvæmilegt. Efnisyfirlit hefir
verið samið fyrir hvem kapitula og er það prentað fyrir framan. Á það að
geta orðið til mikils hagræðis og auðveldað það að finna Ritningarstaði.
Letur er stórt og gott og prentað í tveimur dálkum. Pappir er einnig hinn
vandaðasti. Loks var ráðizt í það með samþykki Brezka Biblíufélagsins
að taka myndamót af myndum þess í afmælisútgáfunni 1955 og hafa í þess-
ari útgáfu. Annaðist Prentmyndastofa Helga Guðmundssonar það verk. En
Leiftur sá um prentun og pappír. Bókfell batt inn í sterkt og gott band.
Aðalútsölu hefir Leiftur h.f. og sendir bókina til bóksala um land allt.
— Verði er í hóf stillt, svo sem skylt er samkvæmt tilgangi Hins íslenzka
Biblíufélags. Má þakka það hinum mörgu félögum þess, sem hafa létt undir
þessar framkvæmdir.
Aðgerð á hljóðfærum kirkna. Kjartan Jóhannesson hefir jafnframt
söngkennslu sinni á Austurlandi í haust og vetur gjört við orgel í nokkrum
kirkjum.