Kirkjuritið - 01.01.1957, Blaðsíða 54
48
KIRKJURITIÐ
kvöld og prédikaði í ungmennafélagshúsi í Skíðadalnum á nýársdag. Auk
þess voru 4 giftingar og 11 skírnir. — Það var auðvelt að anna þessu, af
því að veður og færi gafst gott. Kirkjusóknin var alls staðar sæmileg og
sums staðar ágæt. — Tjamarkirkju vom færðar jólagjafir: Nýr hökull og
skímarfontur. Sóknarmenn skutu saman í hvort tveggja, sérstaklega þó
konurnar í söfnuðinum. Þá fékk Vallakirkja dálitla peningagjöf frá burt-
fluttri safnaðarkonu, fátækri og gamalli. Minnir gjöfin mjög á „eyri ekkj-
unnar.“
Björn Rögnvaldsson liúsasmíðameistari varð sextugur 21. des. sl.
Síðan 1936 hefir hann verið umsjónarmaður við opinberar byggingar og
m. a. séð um smíði prestsetra og útihúsa á þjóðjörðum. Er hann því
flestum prestum að góðu kunnur. Góðviljaður rnaður og fús til áheymar.
Hefir þegar afkastað miklu dagsverki og margbreytilegu á víðum vett-
vangi bæði í höfuðborginni og um landið allt.
Vegleg gjöf var færð Húsavíkurkirkju (Húsavík við Skjálfanda) við
messu sunnudaginn 12. ágúst, sl. Voru það tveir stórir og vandaðir kerta-
stjakar úr silfri, fimm-arma. Gjöf þessa gaf Jón Bjömsson, Guðrúnargötu
5, Reykjavík, vélstjóri á vs. „Hvassafelli“, til minningar um foreldra sína,
hjónin Björn Árnason og Guðrúnu Jónsdóttur, sem bjuggu að Eyvík (Rauf)
og Ketilsstöðum á Tjörnesi í Húsavíkursókn. Sóknarpresturinn tók á móti
gjöfinni fyrir hönd safnaðarins, minntist hinna látnu heiðurshjóna og vott-
aði gefandanum þakkir.
Æskulýðshöll í Reykjavík. Allar horfur era nú loks á því, að æsku-
lýðshöll rísi innan skamms í Reykjavik og verði hún í senn íþróttahöll og
skautasalur, sýningarskáli og fundarhalda. Virðast allir hlutaðeigendur
sammála um að hrinda þessu máli í framkvæmd undir forystu Reykjavík-
urbæjar.
Bók um Skálholtshátíðina. Áformað hefir verið, að á þessu ári verði
gefin út bók um Skálholt og Skálholtshátíðina á síðastliðnu sumri, og verð-
ur hún prýdd rnörgum myndum.
KIRKJURITIÐ
kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elísabetu Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 4776.