Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 14
Vr. ihcol Tííagnús ^ónsson sj,öiugur - VIÐTAL - Hann varð sjötugur 26. nóvember síðastliðinn, fæddur í Hvammi í Norðurárdal, sonur séra Jóns Ó. Magnússonar og konu hans, Steinunnar Þorsteinsdóttur. Hér verður ekki rakin ævi hans, enda mætti frekar líkja benni við höll með lystigarði en venjulegt hús. Aðeins drepið á nokkra meginþætti. Eftir óvenjufega glæsilegan námsferil gerðist Magnús Jónsson prestur nokkur úr vestan hafs, síðan á Isafirði. Háskólakennari i 30 ár. Alþingis- maður í aldarfjórðung. Formaður fjárhagsráðs í sex ár. Skamma stund ráðherra. f ótal nefndum. Formaður útvarpsráðs lengi. Mikilvirkur rit- höfundur. Skrifaði stórt rit um Pál postula, ýtarlegasta ritið unr séra Hall- grim Pétursson (í 2. b.), sem enn hefir verið skráð. Tvö bindi af Sögu íslendinga. Ritstjóri nokkurra tímarita í mörg ár. M. a. meðritstjóri Kirkju- ritsins í tíu ár. Kunnur málari. Um glæsileik dr. Magnúsar Jónssonar mun ekki deilt né fjölhæfni hans. Þar er hann meðal hinna fáu, er standa í fremstu röð. Oft hefir mér fund- izt það einna skýrasta merki um gáfur hans, að þegar ég var lærisveinn hans í guðfræðideildinni, vissi ég, að hann lét engri spurningu ósvarað. Og á stundum fannst mér mest til um það, þegar hann lýsti því hvað fegurst og snjallast, sem ég vissi, að engin mannleg þekking náði til. Eng- an hefi ég heldur vitað lýsa jafn glæsilega og af líkum eldmóði tveim andstæðum skoðunum á sama máli, varpa jafn skýru ljósi yfir marga fleti sama hlutarins, geta verið sækjandi og verjandi samkvæmt því, sem á stóð eða nauðsyn krafði. Hann skapaði mönnum ekki skoðanir né tróð í þá trúarlærdómum en gerði glögga grein fyrir efninu og lagði spilin á borð- ið. Svo átti lærisveinninn sjálfur að skera úr og ákveða niðurstöðuna. Hefði hann snúizt til kaþólsku, hefði hann óefað orðið kardínáli, — ef til vill páfi. En sem betur fór sat hann hér heima og hélt tryggð við þjóðkirkjuna. Og varð þann veg ekki aðeins kirkjuhöfðingi, heldur setti meiri svip á þjóðlífið en flestir aðrir á þessari öld. Ég leyfi mér að flytja dr. Magnúsi Jónssyni þakkir allra lærisveina hans, og biðja honum blessunar.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.