Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 50

Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 50
480 KIRKJURITIÐ tr Séra Eiríkur Albertsson dr. theol. (Fæddur 7. nóvember 1887). Faðir vor. (Bænabók fyrir böm.) Svo heitir kver, er bama- bókaútgáfan Máni í Reykjavík hef- ir gefið út. Er bæn bænanna þar útskýrð með myndum, sem yfirleitt em auðskildar og smekklegar. Má heita nýmæli, sem verður til góðs, ef rétt er á haldið. Hinni fyrirhuguðu Hafnar- kirkju í Homafirði barst nýlega 15.000,00 kr. gjöf frá Elínu Jóns- dóttur, Sigríði Jónsdóttur og Jóni Höfn. Gáfu þau fé þetta til minn- ingar um bróður sinn, er lézt 24. nóvember síðastliðinn, Frú Jóhanna Gunnarsdóttir, ekkja séra Tlieódórs Jónssonar prests að Bægisá, andaðist hér í bænum 14. nóv., 84 ára að aldri. Hún var glæsileg kona og gáfuð, söngelsk og lék prýðilega á hljóðfæri, vinsæl og vel látin. Aldarafmælis séra Jóns Sveinssonar (Nonna) 16. nóv. var minnzt með hátíðasamkomu á Akureyri í húsi því, sem var um skeið bemsku- og æskuheimili hans, og hafa konur á Akureyri komið þar upp safni til minn- ingar um hann. Séra Sigurður Stefánsson prófastur flutti erindi um séra Jón, og auk þess vom flutt nokkur stutt ávörp. Afmælisins var líka minnzt í blöðum í Reykjavík og útvarpinu. KIRKJURITIÐ kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00. Afgreiðsla hjá Elisabetu Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 4776.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.