Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 32
462
KIRKJURITIÐ
að leggjast yfir þjóðlífið líkt og svarta þoka, sem sígur utan
af hafinu? Látum vér oss nægja að skilja börnum vorum að
mestu eftir tómar kirkjur á sviði kristninnar?
Nei, nú er ekki tími til að láta reka á reiðanum og bíða
átekta, heldur stund starfs og stríðs í fylgd hins krossfesta og
upprisna leiðtoga aldanna.
Ósamræmi
guðspjallanna.
Ósjaldan er mikið úr því gert, hvað guðspjöllin greini á um
ævi Jesú Krists, ekki sízt upprisu hans. Á það að sanna, að
þetta bendi til, að viðburðimir séu uppspuni. En það sýnir
aðeins það sem vitað er, að sjónarvottum ber jafnan illa sam-
an. Hér fer á eftir lítið dæmi um það frá þessu ári, tekið eftir
tímaritinu World Christian Digest.
JERÚSALEM UM 37 e. Kr.
Frásagnir Nýja testamentisins af
upprísunni.
En eftir hvíldardaginn . . . kom
María Magdalena og María hin.
(Matt. 28,1)
Og er hvíldardagurinn var liðinn,
kom María Magdalena og María
... og Salóme . .. (Mark. 16,1.)
Og þær gengu inn í gröfina og sáu
ungan mann sitjandi hægra megin
. . . (Mark. 16,5.)
Og er þær gengu inn . . . stóðu allt
í einu tveir menn hjá þeim.
Lúk. 24,4-4.)
LONDON 1957
Frásagnir enskra blaða af endur-
fundum Elísabetar drottningar og
Filippusar hertoga, er hann kom
úr för sinni umliverfis hnöttinn.
Hertoginn . .. kom fimm mínútum
of seint. (The Duke of Edinburgh
. .. came five minutes late —).
„Sunday Express“.
Þau gátu ekki verið stundvísari.
(The timing was perfect —).
„Sunday Dispatch“.
Hann endaði með því að koma of
snemma. (He finished up by being
too early.) „Reynolds News“.
Þau voru ekki ein á stund endur-
fundanna. Fjórir . .. horfðu á. (The
re-union was not in private. Four
people . . . were looking on.)
„Sunday Dispatch".