Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 22

Kirkjuritið - 01.12.1957, Blaðsíða 22
452 KIRK JURITIÐ Það má Guð einn vita. En sé horft langt fram í tímann, er ég ekki í neinum vafa. Hin eilífu sannindi kristindómsins munu sigra um alla jörð. En búningar hans verða sennilega marg- víslegir, og ekki víst, að skammsýnum mönnum gangi vel að þekkja hann ævinlega. Getur Kirkjuritið borið nokkur boð frá þér á þessum tíma- mótuum ævi þinnar? Já, biddu mennina að vera góða hvem við annan. Það ætti að vera útlátalítið. Við eigum svo góðan föður á himnum, að það er ótrúlegt, að bömin hans haldi áfram að stía sér sund- ur og gera nafni hans vanvirðu með því. Hann stendur enn við dymar og knýr á og vill hjálpa, hvar sem hans er leitað. Gjöf hjarðsveinsins. S\ro hermir gömul lielgisögn: Þegar vitringamir þrír fundu barnið og móður þess í fjárhúsinu í Betle- hem, stóð lítill hjarðsveinn við dymar og gœgðist inn. Stómm augum horfði liann á hinar dým gjafir, sem vitringamir færðu baminu: gullið reykelsið og myrruna. En í stað þess að öfunda barnið af djásnunum, hrygðist lijarðsveinninn litli sáran yfir því að hann skyldi vera svo fátæk- ur, að hann átti ekkert til að gefa fallega sveininum í jötunni. Og þegar vitringarnir komu út gat hann ekki látið vera að lirópa upp með tárin í augunum: „En hvað þið eigið gott að geta gefið Jesú þetta. En ég á ekkert lianda honum!“ En einn vitringanna strauk honum milt um hárið og sagði. „Nú skjátl- ast þér, drengurinn minn! Það ert þú, sem ert sæll. Við emm orðnir gaml- ir menn og líf okkar er úti áður en varir. Við emm ekki lengur færir um að þjóna konunginum. En þú ert ungur. Þá átt mörg ár, já, allt lífið fram- undan. Þú getur helgað honum óslitna og elfda krafta, heitar og ríkar tilfinningar, háleitar hugsjónir. Þú getur gefið honum sjálfan sig, líf þitt allt. Sæll er þú!“

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.