Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 16

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 16
446 KIRKJURITIÐ Níelsson. Ég var mjög hrifinn af þeim, þeirra mikla fróðleik og einstaka fjöri. En annars hefi ég aldrei verið mjög áhrifa- gjam til langframa, og ég man ekki til, að nokkur maður eða nokkur bók hafi haft varanleg áhrif á mig — nema á yfirborði. Ég var með þó nokkra kjalfestu úr föðurgarði og var að mörgu leyti móti þeirri guðfræði, sem þama var kennd. Mér fannst hún einhvem veginn vera fyrir utan túngarð. En ég lærði hana vandlega og fannst hún skemmtileg eins og flest, sem ég las. Ég efast um, að nokkur maður hér á landi hafi kunnað betur skólafögin en ég gerði. En það var utan við túngarðinn og kom ekki heim á bæinn fyrr en síðar, hægt og hægt. En ætli þetta gerist ekki nokkuð oft, ef menn athuga vel? Hvað eru þessar föstu skoðanir, sem margir þykjast hafa og berjast fyrir, — hve fastar eru þær og djúpstæðar? Mér finnst skoðanimar stundum lítið annað en patentmeðul til þess að lina sálarverk- ina, sem það kostar að gera málin upp við sig vægðarlaust. Hvernig féll þér prestsstarfið vestan hafs og austan? Ég get sagt það alveg með sönnu, að prestsstarfið í kirkju og við aðrar prestslegar athafnir eru yndislegustu störf, sem ég hefi unnið — sólskinsblettir, sem aldrei fymast. En prestsstarfið er fleira, og ef til vill ber það prestinum meira vitni, sem hann vinnur utan þessara helgistunda. Lærisveinanna ævistarf var ekki það að vera áfram með meistaranum uppi á fjallinu, held- ur beið starfið sjálft þeirra niðri í eymdadalnum. Og þetta starf, prestsstarfið í söfnuðunum var skapferli mínu fjarri, eins og öll afskipti af annarra högum. Ég er miklu ómannblendnari en margur hyggur. Ég hefi gaman, eða hafði gaman af að vera innan um menn, ef mér var allt þar óviðkomandi. En prestur- inn á að vera Ijós á stjakanum, lýsa öðmm, leiðbeina, skipta sér af öllu, taka þátt í öllu. Þetta hefi ég aldrei viljað gera, og þess vegna var ég víst aldrei neinn prestur að gagni. Ég fann þetta vel. Ég gat aldrei kynnzt fólki eins og presturinn á að kynnast því, aldrei nema á yfirborði og svo sem einn þumlung inn fyrir yfirborðið. — Svo hefi ég líka alltaf verið ómann- glöggur — meðal annars af því, að ég á svo bágt með að skilja,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.