Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 19

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 19
MAGNÚS JÓNSSON SJÖTUGUR 449 Dr. Magnús Jónsson: Frá Getsemane (Málverk). Eg reyndi það ekki. Ég lifði í þ essum tveim veröldum, og þær runnu furðu lítið saman, og enginn vandi að vinna for- svaranlega í þjónustu beggja, ef vel var að verið. Og þó vildi hallast á. Eg komst inn í stjórnmálin að kalla má óvart, og þau náðu litlum tökum á mér fyrstu árin. Þá voru grautarlegir tím- ar í pólitík og skemmtilegir, ekki þessi stórveldaofsi, sem síð- ar kom. En svo harðnaði á dalnum, og pólitíkin fékk drjúgt af tíma mínum t. d. 1924—1934. Þá las ég mikið af hagfræði og öðru, sem mér fannst gagn í fyrir landsmálin. Þetta var mér mjög þarft. Og svo skrifaði ég mig og talaði upp í bjarg- fastar skoðanir og horfði með ógn og skelfingu á það, hvemig „hinir“ voru að fara með allt norður og niður, en ég kallaður til þess að bjarga. Nú sé ég þetta allt álengdar og gleðst yfir því, að alltaf eru allir að bjarga, svo að ég sé eiginlega ekki, hvemig nokkuð illt ætti að geta komið fyrir. En guðfræðistúkan mín var læst og vel vörðuð gegn öllu þessu. Ég vanræki aldrei að búa mig undir kennslustundir eða fynrlestra eins vel og ég átti föng á. Ég vissi vel, að þar biðu

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.