Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 21

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 21
MAGNÚS JÓNSSON SJÖTUGUR 451 yfir alla guðfræði. Og þar sem fæstir eiga kost á eða kæra sig um 50 ára guðfræðinám, þá er bezt, að ég eigi mitt hús fyrir mig. Ég er ekki neitt afskiptasamari um annarra hag en ég var á yngri árum — nema síður sé. Mér er t. d. alveg óskiljanlegur þessi pokalegi kotungsbragur að vilja vernda siðferði fólksins með bókabanni. En þeir um það, sem kotungsskapnum unna. Og svo að ég víki aftur að guðfræðinni minni, þá er nauða- stutt milli hennar og guðfræðinnar minnar, þegar ég var svo sem 12 ára gamall. En þar er þó ævin á milli. Hvaða guðfræðistefnur telur þú líklegastar til farsældar í framtíðinni? Þetta er undir svo mörgu komið — er svo relatívt —, að ég treysti mér ekki til að segja neitt um það. Telur jbú svipað ástand í trú- og kirkfumálum nú og á æsku- árum þínum og fyrstu árin við háskólann? Sé um mikilvægar hreytingar að ræða, þá liverjar helzt? Nei, nei. Það hefir breytzt, bæði hið innra og ytra með þeim miklu þjóðfélagsbyltingum, sem orðið hafa. í æsku minni voru allir, sem ég vissi um, trúaðir í ytri háttum. Allir, sem gátu, komu til kirkju í hvert sinn, sem messa átti. Um trú þeirra hið innra veit ég ekki, en ég býzt við, að hún hafi verið einlæg. Á námstíma mínum fannst mér það þykja nálega sjálfsagt, að vera móti trúarbrögðum. Nú finnst mér þetta breytt, og kominn 1 staðinn nokkurs konar velviljaður heiðindómur, og svo fá- mennir kristnihópar líkt og í löndum, þar sem rekið hefir ver- ið duglegt heiðingjatrúboð um nokkurt skeið. Verkefni kirkj- unnar í dag er því ekkert annað en heiðingjatrúboð heima og erlendis. Ég tek það fram, að ég er ekki að segja neitt ljótt um þann heiðindóm. Hann er eitthvað svipað og flestir Kínverjam- ir svöruðu mér, ef ég spurði, hvaða trú þeir hefðu: „Enga trú,“ svöruðu þeir. Líklega er þó kristindómurinn miklu sterkari í djupum sálarinnar en menn vita eða aðrir sjá. Hvernig horfir um framgang kirkfunnar í heiminum í nánustu framtíð að þínum dómi?

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.