Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 27

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 27
EINING KIRKJUNNAR I KRISTI 457 III Kristur hefir sætt oss við Guð og sameinað oss í bræðralagi, ]pannig, að hver bróðir verði bróður sínum Kristur, eins og Lúter komst að orði. Eins og trúin er undirstaða þessa bræðra- lags, þannig er kærleikurinn aflið, sem lifir þar og ríkir. En trúin án kærleiks er dauð, og eining kirkjunnar getur ekki hald- izt öflug og lifandi, nema hlýðnin haldist stöðugt við boðorðið nýja, sem Jesús gaf fylgjendum sínum. Sú var tíðin, að heiðnir menn þekktu kristna menn á því, að þeir elskuðu hverir aðra. Nú gætir þess kærleiks ekki mjög i söfnuðum vorum. Nú virðist svo stundum, sem eining í trú °g kenningu slökkvi áhugann á einingu í kærleika. Geta kristn- ir menn varið það að hafa sömu játningu og lifa þó ekki í bræðralagi kærleikans. Djúp er staðfest milli stétta, þjóða, kynþátta og tungumála, sem varnar því, að kirkjur, sem hafa sömu játningu, geti sameinazt fullkomlega sökum kærleiks skorts. Vér öll bæði í austri og vestri erum helzt til oft, hvort sem ver vitum það eða ekki, að reisa rammar skorður gegn trúar- einingu í verki. Ekkert annað en kærleikurinn megnar að stíga yfir þessar skorður og leiða til trúareiningar í hjarta og lífi hvers og eins. Ennfremur er það kærleikurinn, sem ver fyrir hættulegum lögmálsákafa þeirra, sem vilja láta allt vera eins, þar sem trúar eining ríkir. Þessi löngun til þess, að allt sé eins, er í raun og veru eins konar eigingirni. Allir aðrir verða að vera eins og eg er sjálfur. En kærleikurinn leitar ekki síns eigin. Kærleik- urinn varnar því, að fagnaðarerindið lækki og verði að lögmáh'. Þetta vissu feður vorir. Þess vegna töldu þeir hvorki einingu í helgiþjónustu né stjómaraðferð nauðsynlega einingu kirkj- unnar. Hinir sterku áttu að umbera veikleik hinna óstyrku. Hinir styrku eiga að rannsaka sjálfa sig til þess að sjá, hvort kærleikur þeirra er eins sterkur og trú þeirra og hvort það sé rett af þeim að fórna einingu kirkjunnar fyrir sérskoðanir þeirra. °g hinir veiku eiga að rannsaka, hvort framkoma þeirra neyði

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.