Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 30

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 30
Vökuþörí. Svo virðist almennt að umtali manna og afstöðu til kirkj- unnar, að þeir telji framtíð kristindómsins í landinu fastákveðna, og liggi hún í augum uppi. Hins vegar skiptast þeir í tvo hópa varðandi það, hvernig henni verði farið. Annar þeirra, sem ég hygg að muni enn fjölmennari, ætlar, að kristnin hafi ríkt hér óskorað síðan árið þúsund og sé sjálfgefið, að henni verði ekki haggað, á meðan þjóðin lifir. Hinn flokkurinn, sem er fjölmenn- ari en margur hyggur, telur daga kristninnar raunar talda. Oll trúarbrögð séu leifar frá frumstigi menningarinnar, hillingar, sem hverfi strax á morgni atómaldar. Vísindi og nútímaheim- speki hafi grafið grunninn undan kirkjunni. Ilún lafi uppi eins og gamalt hús, sem að mestu er flutt úr, — og verði rifið ein- hvern daginn. Sannleikurinn er sá, að enginn veit, hvemig þessi mál skip- ast hér á næstunni. Það er í fyrsta lagi óvíst, hvað núverandi mynd kirkjunnar, þjóðkirkjan, verður lengi við líði, enda ósann- að að til ills leiddi, þótt þar yrði breyting á. En um kristnina sjálfa er líka háð eitthvert það lengsta og harðasta heimsstríð, sem sögur greina frá. Það hefir senn staðið í tuttugu aldir. Þótt kristnin hafi sótt fram og sífellt unnið á, ef litið er á heildina, hefir hún sums staðar orðið að hörfa undan og láta af yfirráðum a. m. k. í bili. Enginn maður né þjóð verður kúg- uð til annars en nafnkristni, sem kemur til lítils. Rétt kristni er ekki ytra vald, heldur gróður, sem unnt er að rækta eða svelta í hel. Hver sá það fyrir þremur áratugum, að heilar sveitir lægju

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.