Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Qupperneq 40

Kirkjuritið - 01.12.1957, Qupperneq 40
470 KIRKJURITIÐ En við það að líta í hin bláu augu Barböru May var hann hrifinn upp úr draumórunum og vaknaði á ný til lifandi minningar um missi sinn. Hann tók svo í meinin, að hið stöðuga rennsli kaupendanna fyrir jólin var honum til sárra leiðinda. Það var ös næstu tíu dagana. Málóða komn: suðuðu í kringum hann, handfjötluðu skartgripina og þjörkuðu um verð- ið. Þegar hann sá á eftir síðasta kaupandanum á aðfangsdagskvöldið, and- varpaði hann léttilega. Þá var þessu Iokið þetta árið. En það var nú ekki allt búið fyrir Pétri Wakefield samt sem áður. Dyrnar opnuðust og ungri konu skaut inn. Hann fann það alveg ósjálf- rátt, án þess þó að geta áttað sig á því, að hún kom honum kunnuglega fyrir sjónir. Samt gat hann ekki gruflað upp, hvar eða hvenær hann hefði séð hana áður. Hún hafði Ijósgullið hár og blá augu. Hún dró orða- laust lítinn böggul upp úr tösku sinni, hann hafði verið vafinn í rautt bréf, græn silkibandslykkja fylgdi. Allt í einu glitraði bláa perlufestin aftur fyrir augum hans. „Er þessi festi héðan úr búðinni?" spurði stúlkan. Pétur Wakefield leit í augu hennar og svaraði hóglátlega. „Já, hún er héðan.“ „Eru steinamir egta?“ „Já. Að vísu ekki dýrasta tegund, — en samt egta.“ „Munið þér, hverjum þér selduð hana?“ „Auðvitað. Það var hún Barbara May, Iitla systir yðar. Hún keypti fest- ina til að gefa yður hana i jólagjöf." „Hvað kostar hún?“ „Verðið,“ sagði hann hátíðlega, „var 37 dalir.“ „En Barbara hefur aldrei átt 37 dali. Hvernig gat hún borgað þetta?“ Með einstakri leikni af einhentum manni að vera braut Pétur Wake- field fallegu umbúðimar aftur i gamla farið, og gekk eins snoturlega frá pakkanum og í upphafi. „Hún greiddi þá mestu upphæð, sem nokkur fær nokkm sinni goldið,“ lagði hann. „Hún gaf allt, sem hún átti.“ Djúp þögn fyllti litlu minjagripaverzlunina. í fjarlægum kirkjuturni var tekið að hringja klukkunum. Klukknahljómurinn, sem barst utan úr fjaisk- anum, litli bögguUinn á búðarborðinu, spumingin í augum stúlkunnar, og hin kynlega endumýjung, sem bærði á óskiljanlegan hátt á sér í hjarta mannsins, — allt átti þetta rætur að xekja til ástar 'lítils bams. „En hvers vegna gerðuð þér þetta?" Hann rétti fram gjöfina. „Jólin em þegar gengin í garð,“ sagði hann, „og það er óhamingja

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.