Kirkjuritið - 01.12.1957, Síða 45
Frá söngrmálum Staðarfellskirkjn
Síðastliðinn nýársdag messaði ég að Staðarfelli á Fellsströnd. Við þá
messu lék í fyrsta skipti á orgel kirkjunnar Halldór Þórðarson frá Breiða-
bólstað, rmgur maður, sem numið hefir að undanfömu í Söngskóla Þjóð-
kirkjunnar, og búið sig undir að taka við söngstjóm í Staðarfellskirkju.
Það er alltaf gleðilegt, er nýir starfskraftar bætast kirkjum lands vors,
en í sambandi við þennan atburð fór ég að grafa upp ýmislegt úx sögu
kixkjusöngsins á Staðarfelli undanfama áratugi. Ég tel rétt að geta þessa
hér og í þessu sambandi, því að í janúarmánuði réttum 30 ámm áð-
ur en hinn ungi maður hóf organistastörf sín í vetux, hóf faðir hans, Þórð-
ur Kristjánsson á Breiðabólstað, forsöngvarastarf í þessari sömu kirkju.
Annaðist hann það með prýði, þar til orgel var keypt til kirkjunnar 1936
eða 1937. Þá tók dóttir Ihans að leika á það, en Þórður söng áfram í kóm-
um, og enn hljómar hans hreina bassarödd í Staðarfellskirkju. Þórður hefir
emnig gegnt meðhjálparastörfum í fjölda ára og verið lengi formaður
soknamefndar.
En ætt þeirra feðga á lengri sögu við söngmál Staðarfelllskirkju. Frá þvi
um sl. aldamót og fram yfir 1920 var lengst af forsöngvari á Staðarfelli
Jóhannes Jónsson, bóndi á Hellu, móðurbróðir Þórðar Kristjánssonar. Vom
þau systkin talin hafa sérstaklega fallega söngrödd.
Johannes ólst upp á Breiðabólsstað hjá Þórði Jónssyni, afa Þórðar Krist-
jánssonar. Sá Þórður Jónsson (f. 1816) hefir liklega verið manna lengst for-
söngvari í Staðarfellskirkju eða frá því er hann var 18 ára og til hárrar
eUi- Hann 'lézt 1899 og hafði þá verið blindur í 18 ár. Forsöngvari kirkj-
unnar var hann þó oft eftir að hann varð blindur. Sálmamix hafa verið
honum kunnir eftir öll þessi ár.
Saga ein er sögð af Þórði þessum: Þegar Þórður var 18 ára, fór hann
ásamt fleiri mönnum skreiðarferð út undir Jökul. Á sunnudegi áttu þeir
leið fram hjá kirkju í Kolbeinsstaðahreppi, og stóð þar yfir messa. Þeir
aðu því hestum sínum og gengu í kirkjuna. En þá vildi svo til, er þeir
gengu í kirkjuna, að forsöngv arinn fór út af laginu. Þórður greip þá lagið
°g sónS af raust með söfnuðinum. Eftir messu þakkaði prestur honum fyrir
sönginn.
Nu um n°kkurt skeið hefir frú Sigríður Halldórsdóttir á Orrahóli annast
organleik í Staðarfellskirkju.
Þórir Stephensen.