Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 47

Kirkjuritið - 01.12.1957, Page 47
BLÁ PERLUFESTI 477 Eitt af því fáa, sem hægt er að kaupa litlu verði nú á dögum, eru erlend- ax, einkum enskar og amerískar bækur í hinum ódýru útgáfum. Má þannig fá mörg úrvalsrit fyrir um og innan við tíu krónur. Þar á meðal ágæt rit um trúarleg efni, svo sem hugleiðingar, og einnig fræðibækur, að ótöldum skáldsögum, sem styðjast við biblíuleg efni og víða eru nú mjög lesnar. Bókaverzlun Snæbjamar Jónssonar í Reykjavík hefir margar slíkar bækur á boðstólum. Verður hér getið nokkurra, sem ritinu hafa borizt og ætla má, að prestar og margir fleiri hefðu meiri og minni ánægju og gagn af. PEACE OF SOUL eftir Fulton J. Sheen. - LIFT UP YOUR HEART eftir sama. — Höfundurinn er hálærður kaþólskur biskup í Ameríku. Fræg- ur útvarpslesari og víðlesinn ritlhöfundur. Hann skrifar mjög ljóst og al- þýðlega rnn margs konar trúfræðileg og siðfræðileg efni. Síðari bókin snýst um leiðimar til andlegs þroska og hfandi trúarsamfélags við guð- dóminn. Nokkuð í hugleiðingastil. Sú fyrmefnda finnst mér veigameiri. Hún geymir 14 ritgerðir um ýmislegt, sem mörgum verður nú tíðhugsað um. Nefni t. d. þessar yfirskriftir: Heimspeki kvíðans. — Er Guð torfund- inn? — Kynlíf og Guðsást. — Óttinn við dauðann. Þetta er bók, sem gróði er að. THE STORY OF THE BIBLE eftir Hendrik Willem van Loon. - Létt endursögn aðalefnis Ritningarinnar aftur að Postulasögunni. Handhæg til yfirlits og prýdd mörgum skemmtilegum teikningum höfundarins. PEACE WITH GOD eftir Billy Graham. — Hreinskilnislega sagt þykir mér ekki sérstaklega mikið koma til þessara prédikana hins heimsfræga vakningamanns. En hér gefst mönnum tilvalið tækifæri til að kynnast sumu því bezta, er hann hefir sagt og skrifað. Það ætti að vera flestum forvitnislegt, því að sennilega hefir enginn maður fyrr prédikað fyrir fleiri mönnum samtímis en hann. Og óneitanlega hefir hann víða haft mikil áhrif. Og sumum sýnist það ef til vill gull, er ég ætla aðeins eir. THE MAN FROM NAZARET eftir Harry Emerson Fosdick. - A GREAT TIME TO BE ALIVE eftir sama. - Þetta eru litlar bækur en luma á sér. Báðar skemmtilegar aflestrar og koma víða við. Óhætt að mæla með þeim, enda höfundurinn einn alkunnasti prestur, sem nú er uPpi. fjölfróður og velviljaður, víðsýnn og ritsnjall. Loks verða hér taldar þrjár bækur eftir blaðamanninn Fulton Oursler: THE GREATEST STORY EVER TOLD. - THE GREATEST FAITH

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.