Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 12

Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 12
154 KIRKJURITIÐ Verk Magnúsar Jónssonar lýsa honum, og ég hefi reynt að láta þau tala. En ég finn, að orð mín eru fátækleg. Ég hygg, að tveir meginþættir hafi haldið uppi lífi hans. Annar var listgáfa hans. Hann var skáld, þótt hann feng- ist lítt við það að yrkja Ijóð. Þegar hann talaði eða ritaði af mestri andagift, dró hann upp hverja myndina annarri skáld- legri. Hefði hann tamið sér ljóðagerð, er ég ekki í neinum vafa um það, að hann hefði orðið mikið og gott sálmaskáld. En hann orti í litum. Þóttu mér málverk hans fögur, og þeir, sem vit hafa á, telja þau hafa listrænt gildi. Er safn þeirra orðið mikið. Myndir hans frá landinu helga prýða veggi guð- fræðisdeildar Háskólans og altaristöflur hans nokkrar kirkj- ur, m. a. þá, er honum þótti vænst um, Mælifellskirkju. Hann segir í viðtali á sjötugsafmæli sínu: „Ég átti nefni- lega svolítinn sumarkofa auk hinna húsanna. Ég var þar sjald- an, en hann gaf mér mikla nautn. Ég á við föndrið, málara- föndrið. Ég hætti því aldrei alveg. Og nú er það að verða að breiðari og breiðari straumi. En við skulum ekki tala meira um það.“ Mér fannst ég stöku sinnum kenna nokkurs sárs- auk,a hjá honum yfir því, að listgáfa hans skyldi ekki ná meiri þroska, svo að í hug komu orð Esajasar Tegnérs: Och tidens liittebarn, her satt i skolen, fár kanske se sin fader bort om solen. Við rúmi hans í Landspítalanum blasti myndi af barninu Jesú í faðmi móður sinnar. Hann horfði löngum á hana og sagði einu sinni við mig: „Ekkert mun hafa verið málað fegur en þessi mynd af Jesú. Hvílikur guðdómlegur hreinleiki frá æðra heimi. Og mér þótti sem hann horfði inn i þennan heim myndarinnar. Hinn þátturinn var trú hans. Og þessir þættir báðir voru fast saman slungnir. 1 morgunsálmi, sem hann orti, líkir hann Guði við málara: „0, Drottinn, hvað þín dýrð er stór og fögur, er dregur þú um loft og jörð og ögur

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.