Kirkjuritið - 01.04.1958, Blaðsíða 45
ERLENDAIt FRETTIR
Frá sanibaiidsfuiidi liiblíufálaf'aiina.
23 Biblíufélög létu árið 1956 af hendi 3200000 Bibliur, 3200 000 Nýja-
testamenti og 19 900 000 stök Biblíurit. Eftirspurninni var ekki nándar-
nærri fullnægt. Ástæður þess eru m. a., að mannkyninu fjölgar um 25
milljónir árlega, aðrar 20 milljónir fullorðinna manna læra nu lestur ar-
lega. Áróður Biblíufélaganna fyrir auknum Biblíulestri hefir sívaxandi
áhrif, Hinar ungu kirkjur í Afriku og víðar auka lika mjög á þessa þörf.
Heimssamband Bibliufélaganna var stofnað 1946 og samstarf á þessu
sviði er raunar upphaf víðtæks alsambands kristinna manna. Störf sam-
bandsins beinast einkum að þrennu: Þýðingum Bibliunnar, útgafum henn-
ar og dreifingu.
Frá upphafi og fram að prentöld var Biblían þýdd á 33 tungumál.
Næstu 250 árin, eða þangað til 1804, að fyrsta Bibliufélagið (brezka) var
stofnað, bættust 39 þýðingar við. Á 19. öld jókst þessi tala um 472. Það
sem af er þessari öld hafa verið gerðar 210 nyjar þýðingar af Bibliunni
allri, og N.T. eitt að auki þýtt á 271 tungumál. Betur má þó, ef duga skal.
Enn eru hundruð tungumála, sem aðeins einhver hluti N.T. er þyddur á,
og 1500, sem ekkert af Biblíunni er þýtt é. Eins og sakir standa, er þó verið
að vinna að þýðingu hennar á 350 tungumál. Af þeim eru 150, þar sem
um fyrstu þýðingu er að ræða.
Otgáfan er ýmsum annmörkum bundin. Oft verður að skapa nýtt let-
Ur fyrir nýjar þýðingar. Viða þarf að prenta Bibliuna utan þeirra landa,
sem hennar eiga að njóta. Prófarkalestur er oft næsta erfiður og dýr.
Peningagengið veldur ósjaldan miklum örðugleikum í þessu sambandi.
Dreifingin sjálf er sumstaðar dýr og erfið. Hitt er samt verra, að alloft
verður að selja Bibíiuna undir kostnaðarverði, til þess að sem flestir geti
eignazt hana. Ödýrasta útgáfa hennar í Indlandi kostar t. d. aðeins 5 rúp-
iur, eða um það bil 25—30 ísl. krónur. Verða þó margir að spara lengi
«1 að geta veitt sér þann munað að eignast hana. Og fjöldamörgum er
lika gefin hún. Fyrir þær sakir, er nú hafa verið nefndar, skortir Biblíu-
sambandið fé, og heitir það ó menn í öllum heimi til stuðnings.