Kirkjuritið - 01.04.1958, Blaðsíða 44
186
KIRKJTJRITIÐ
10. júní n. k. DvalarkostnaSur fyrir námsskeiðið er ákveðinn kr. 450,00.
Prestar eru beðnir að vekja athygli á starfsemi þessari í söfnuðum sínum.
AiTalfundur I'reslaiélat's Islauds, en það er nú 40 ára, vcrður
haldinn í sambandi við 60 ára afmælisfagnað Prestafélags Hólastiftis á
Hólum, að áliðnu sumri.
l irrrvskl sjóinaiinalioiinili var vígt í Reykjavík 18. april s. 1.
Jakup Joensen, prófastur Færeyinga, framkvæmdi vígsluna, og ýmsir
fleiri fluttu ræður, m. a. Kristján Djurhuus lögmaður og Klement Elias-
sen framkvæmdastjóri færeyska sjómannatrúboðsins. Sjómannaheimilið er
mjög vistlegt og stendur á fallegum stað.
Kii'kjiidngiir á Ilúsavík. [Hr bréfi frá séra Lárusi Halldórssyni].
Á pálmasunnudag átti að vera „Kirkjudagur* ‘hér á Húsavik, en var frest-
að til skírdags og fór þá fram. Mjög var fjölsótt. Hófst með messu kl.
1,30, en þvi næst voru ávörp tveggja sóknarnefndarmanna, ljóðalestur,
eitt stutt erindi um safnaðarstarf (prestur), mikill kórsöngur og góður og
svo falleg helgisýning barna að lokum. Allra síðast sungu menn saman:
Son Guðs ertu með sanni.
Kirkjuiáiiloikar voru haldnir í april í Laugarneskirkju. Dr. Páll
Isólfsson lék á orgelið og pólýfónkór 41 manns söng undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar við undirleik á fiðlur, selló og sembaló. Einsöng söng
Ólafur Jónsson. Hljómleikar þessir þóttu vel takast og urðu mörgum til
ánægju. Samsöngurinn hófst með þessu fagra versi, sem hér fer á eftir:
Itís lofsiiugsmál.
Rís lofsöngsmál viS kliS og köll
frá klukku, iuSri, streng og gjöll
til hœSa af hjartna grunni.
Sjá nótt hins liSna hverfa hjá
og helgan draum þess logum slá
frá meiSi, mold og runni.
GjaldiS, aldir,
þökk og hylliS himnastilli
heimi sendan.
Hans er vald og hrós án enda.
Þorsteinn Valdimarsson.