Kirkjuritið - 01.04.1958, Blaðsíða 17
KIRKJURITIÐ
159
margvíslegu störf, sem hann vann, heldur finnst mér hann
ógleymanlegur fyrir persónuleik sinn, hið óhemjulega lifsfjör,
leiftrandi gáfur og gleði svo mikla og magnþrungna, að allir
voru glaðir og góðir í návist hans. En jafnframt var hann
herra sinna miklu skapsmuna svo frábær, að hvorki hygg ég
að vinir hans né svokallaðir andstæðingar hafi nokkurn tíma
heyrt hann mæla reiðiorð. Mun þó enginn efast um, að hann
hafi kunnað að halda á málstað sínum. Má jafnvel telja hann
bardagamann í góðri merkingu þess orðs.
*
Hér verður lítt reynt að rekja störf Magnúsar Jónssonar né
telja fram virðingarstöður þær og vegtyllur, sem samferða-
mennirnir veittu honum. Hins er gott að minnast og líka mest
um vert, að hæfileikar hans voru gjafir Guðs, og frá sjónar-
miði vor mannanna tókst honum vel að ávaxta talenturnar
sínar. Sjálfur kom hann fram fyrir Guð sinn og herra sem
hinn auðmjúki þjónn. Fyrir augliti Guðs fann hann ófull-
komleik sinn, og vanefni sín bar hann fram í bæn til hans,
eins og einmitt þeir gera, sem hæst lyfta liuga sínum og
dýpst reyna að kafa í leyndardóma sannleikans. Ég er í eng-
um vafa um það, að sterkasti þátturinn í eðli Magnúsar Jóns-
sonar var guðstrú hans, og öll störf hans og viðhorf hans til
málanna og hugsanakerfi hans var skoðað í þeirri trú og sam-
ofið henni. Mér er því ljúfara að minnast þessa sem ég er
hræddur um, að öðrum sjáist yfir það, þeim sem minnast
Magnúsar Jónssonar sem hins glæsta höfðingja í þjóðlífi voru,
eins og líka vafalaust verðugt er. Er sú gleymska í fullu sam-
ræmi við andrúmsloft samtíðarinnar. En vissulega er það
samkvæmt hans eigin vilja, að Guði séu færðar þakkir fyrir
liðinn ævidag og þær gjafir, sem þegnar voru. Hann ólst upp
á kristnu heimili, þar sem trúarsiðir voru ræktir, helgidagar
haldnir heilagir og starfað var í guðstrausti. Þegar hann stóð
svo sjálfur á þeim vegamótum, þar sem velja skyldi lífsstarf
og stefnu, valdi hann sér guðfræðinám og gekk þegar að því
loknu út í preststarf, fyrst meðal Islendinga í Vesturheimi,