Kirkjuritið - 01.04.1958, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.04.1958, Blaðsíða 14
Magnús Jónsson dr. theol. LíkræSa flutt í dómkirkjunni í Reykjavík 10. apríl 1958. Nú lætur þú, herra, þjón þinn í friSi fara, eins og þú hefur heitiS mér, því eS augu mín hafa séS hjálpræSi þitt. Lúk. 2,29.-30. Þótt vér njótum ekki þess unaðar að fá að skyggnast inn í það ókomna, sjá í sýn það, sem annars er hulið, er því líkast stundum, sem um oss leiftri sýnir. Það eru minningar hinna liðnu daga. Þær eru ríkar í huga minum í dag, er ég stend hér, kallaður til þessarar kveðjustundar. En ég finn um leið til fátæktar minnar að klæða hugsanir mínar og minningar þeim búningi orða, sem verðugt væri og við eigandi. Ég á auð minninga tengdar þeim manni, sem hér hvílir látinn og kvaddur er í dag, og ég á auð þakklátssemi, sem ég mun ekki einu sinni reyna að klæða í búning neinna orða, heldur aðeins bera fram í hljóðum huga ásamt ástvinum hans og öðrum þeim, sem komnir eru hingað til að kveðja. En mér finnst á þessari kveðjustund sem ég heyri rödd, er segir: „Drag skó þína af fótum þér, því að sá staður, er þú stendur á, er heilög jörð.“ Hinn heilagi staður, Guði vígður, er í dag einnig vígður af nálægð dauðans, sem aðskilur föður og börn, bræður og vini, vígður lika af nálægð hans, sem vér kveðjum og eigum á skilnaðarstundinni samleið með um leiðir liðinna daga, svo er hann og vigður af trúnni, lijartri og skínandi og hinni fegurstu von. Á slíkri stund, þegar hugurinn á mest, getur verið erfitt að vita, „hvar skal byrja, hvar skal standa“, svo að myndirnar komi skýrt fram. En ef til vill getur einmitt þessi ljóðlína leiðbeint oss, hvar vér eigum að byrja í dag. Skáldinu urðu þessi orð á vör, er það leit yfir Skagafjörð, skínandi í sól, full-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.