Kirkjuritið - 01.04.1958, Page 13

Kirkjuritið - 01.04.1958, Page 13
KXRKJURITIÐ 155 með ljóssins vendi morguns töframyndir, þá megindýrð, sem skuggavöldum hrindir.“ Hann málaði margar trúarlegar myndir, m. a. Kristsmynd- ir. Ýmsum þeirra mætti gefa sama nafn: Tilbeiðsla. Honum var ljúft að mála sigur ljóssins yfir myrkrinu, lífs- ins yfir dauðanum — komu Guðs ríkis. 1 því sambandi vil ég vekja athygli á mynd hans af kristnitökunni á Alþingi árið 1000, og teldi ég vel fallið, að henni yrði ætlað rúm í fagurri, nýrri kirkju á Þingvöllum árið 2000. Hann ræddi einu sinni um það á kirkjufundi, hvað það væri einkum í fari barnanna, sem Kristur hefði átt við, er hann taldi börnunum heyra Guðs ríki til, og komst að þeirri niðurstöðu, að það væri vanmáttur barnsins og einlæg hjálp- arþrá. 1 þeim skilningi var trú hans barnatrú. Hann hugsaði til Krists, eins og segir í sálminum, er hann lét syngja við útför konu sinnar og sjálfs síns: Kom þú ekki í konungsvaldi striðu, kom með þinni elsku, líkn og blíðu, kom að hugga mig, er harmar þrjá, — hæli syndarans mér vertu hjá. Honum hefir vafalítið líkt og öðrum miklum og góðum mönnum fundizt að leiðarlokum æfistörf sín sundurleit og í molum. En ég hygg, að hann hafi getað tekið undir það, sem Matthias leggur í munn Guðbrandi Hólabiskupi: Og þó var mér ætíð helgast í heim Guðs himneska dýrðar ríki. Hann setti einnig traust sitt á sömu orð Frelsarans og hann: „Þann, sem til mín kemur, mun eg alls ekki burt reka.“ Þökkum Guði fyrir Magnús Jónsson og geymum vel minn- ingu hans. Ásmundur GiiSmundsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.