Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 15
KIRKJURITIÐ
157
an af minningum sögunnar. 1 Skagafirði voru bernsku- og
æskustöðvar dr. Magnúsar Jónssonar prófessors. Hann var
fæddur i Hvammi í Norðurárdal þann 26. nóvemebr 1887, en
fluttist þaðan norður að Mælifelli vorið eftir, missirisgamall,
með foreldrum sínum, séra Jóni Ö. Magnússyni og konu hans
Steinunni Þorsteinsdóttur, og ólst upp hjá þeim á Mælifelli
og síðan á Ríp í Hegranesi. Æskuheimilið var stórt og fjöl-
mennt rausnarheimili með þeim menningarbrag, sem ein-
kenndi beztu heimili landsins á þeim árum. Þar var gestrisni
mikil, enda bar nvargan gest þar að garði, og voru útlending-
ar ekki sjaldan meðal þeirra, sem komu, því að fjölfarinn fjall-
vegur lá að Mælifelli. Ungir menn voru þar jafnan við nám
á vetrum, því að séra Jón Magnússon þótti ágætur kennari.
Var hann og vel að sér í klassiskum fræðum. Hann kenndi
sonum sínum báðum, Þorsteini og Magnúsi, svo að segja all-
an skólalærdóm heima, og er Magnús lauk stúdentsprófi á
tvítugasta aldursári vorið 1907, hafði hann aðeins setið einn
vetur í Lærða skólanum.
Ég minnist þessa hér, vegna þess að öllum er oss ljóst, hví-
lik blessun er að vera búinn góðu vegarnesti úr góðum for-
eldrahúsum. Prestsetrið, höfuðbólið í miðju fögru héraði var
sá skóli, að óvíst er, að aðrir skólar landsins hafi nokkurn
tíma verið betri. Magnús Jónsson fór úr föðurgarði óvenju
vel búinn andlegri og líkamlegri atgervi. Honum fylgdu
miklar vonir, blessunaróskir og fyrirbænir ástríkra foreldra,
og hann lauk prófum sínum með miklu lofi. Óhætt er að segja,
að honum hafi þá staðið allar leiðir opnar til náms og frama.
Var og svo jafnan á ævi hans, að hann átti margra kosta
völ, honum voru boðnar margar stöður og falin margvísleg
trúnaðarstörf og ólíks eðlis, að þvi er virðist a. m. k. í fljótu
bragði. Hann varð prestur og háskólakennari í guðfræði og
ritaði margar bækur um guðfræðileg efni og var ritstjóri
kirkjulegs málgagns. En þegar í byrjun og ávallt síðan hlóð-
ust á hann margvísleg önnur störf, svo að lengst ævinnar
voru frítímar hans aðeins starfaskipti, enda liggur mikið eftir
hann. Verður hér aðeins minnzt á lítið eitt af því.