Kirkjuritið - 01.04.1958, Qupperneq 23

Kirkjuritið - 01.04.1958, Qupperneq 23
KIRKJUHITIÐ 165 Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú og hennar ljós? Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og nú er burt mitt hrós. Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið, unz fáráð öndin sættist Guð sinn við. Þú Ijós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, — í gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engla þá, sem bam ég þekkti fyr. Ég skal ekki dvelja hér lengi við það, hve ólíkur er and- hlærinn frá þessum tveim sálmum. Það er engu líkara en sjá tnegi fyrir sér þessi tvö andans mikilmenni, sem eiga saman þrána eftir Guði og snilldina í skáldskapnum, en fátt annað. Lauk og annar þeirra leit sinni í faðmi katólsku kirkjunnar, en hinn í sálufélagi við Channing og tJnitara. Barnið er sterk- ast í Newman. Hann leitar sterkra móðurarma. En karlmenn- ið í Matthíasi leitar félagsskapar þeirra, sem vilja takast á við erfiðleikana með Guðs hjálp. Þetta kemur ótrúlega vel fram 1 þessum fáu versum. Newman nær allra hæst í lokaversinu og einkum lokaorðunum, en þar fatast Matthíasi svo, að eftir- takanlegt er. Miðversið er daufast hjá Newman. En, í barátt- unni, Jakobsglímunni, rís Matthías hæst. 1 niðurlagi þess tekst Matthíasi svo upp, að lengi mun lýsa sem leiftur, en þar er Newman hinn iðrandi, sundurmarði vesalingur. Ef sálmarnir eru svo bornir saman, sést, að það er í raun og veru ekki margt, sem Matthías beinlínis þýðir. Þarf eng- mn að láta sér til hugar koma, að Matthias hefði orðið skota- skuld úr því að þýða nákvæmlega. En hann vill yrkja sjálfur. Fyrst er þá það, að Matthías sleppir alveg því, sem gefur

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.