Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 25

Kirkjuritið - 01.04.1958, Síða 25
KIRKJURITIÐ 167 Ég ungur var og eigi bað, að Jiú mér lýstir leið, ég hugðist einfær þá, en þig bið nú mér lýsa leið. Ó, gleym því, hversu gálaus mjög ég var, hve glys og dramb mig ofurliði bar. Ég veit sem fyrr þú blessar lífs míns leið og lýsir mér í þrautum enn, í jökulnepju’ og neyð, unz nóttin þver og við mér brosa engil-andlit blið, sem elskað hef ég lengi’, en misst um hrið. Eins og menn sjá, er hér sæmilega nákvæm efnisþýðing, en mikið vantar á, að hvað sé á sinum stað, og frekar er sálm- urinn bragðdaufur. NiðurLagið erfiða er hér vel þýtt, en ein- hvern veginn finnst mér orðið „hríð“ nokkuð hrjúft í þess- um félagsskap. Hvernig sem á því stendur, hefir þessi sálmur Newmans elt mig nokkur undanfarin ár, svo að ég, sem varla hefi getað barið saman eina ferskeytta vísu, hefi orðið að glíma við að þýða hann og helzt fylgja orðalagi hans sem bezt. Ég veit ekki, nema ég losni við þessa ásókn með þvi að birta hér þýð- ingu mína, eins og hún er i svip, en hún er alltaf að breytast. Ég veit, að enginn vænir mig um, að ég sé að ganga á hólm við Matthias né einu sinni Jón Runólfsson, og fallið er ekki hátt á skáldinu í mér, þó að ekki hafi vel tekizt. Hver veit, uema eg komi öðrum betri af stað, sem gerði þessum sálmi full skil. Hefi ég svo ekki þessi orð fleiri, en birti hér þessa þýðingartilraun mína. Leið þú oss milda ljós um dimman geim. Ó, leið þú mig! Dimmt er af nótt og löng er leiðin heim. Ó, leið þú mig! Stýr minni ferð; ég heimta ekki hér ið liáa mark. Eitt fótmál nægir mér.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.