Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 27

Kirkjuritið - 01.04.1958, Side 27
PISTLAR j® Hœtta. Kynslóðirnar eru hraðstígar. Sjaldnast áttum vér oss á því, hve skamma stund hver og einn fer með hlutverk sitt í leik lífsins. Og oft gleymist um of, ekki sízt á umrótstimum, hve hin yngri kynslóð á mikið undir trúnaði þeirrar eldri, eigi hún ekki að vera vanbúnari úr garði en efni standa til. Þekk- ingin er meira lærð en áunnin og veldur margt, hvað hver og einn öðlast af henni, m. a. áhugi og trúmennska fræðar- anna á hverju sviði. Eins má gLata gamalli þekkingu sem ávinna nýja. Ótalmargt leiðir líka til þess, hvaða sviði þekk- ingarinnar hver og einn verður kunnugastur. Snillingur í einni grein getur verið rati í annarri. Enginn er alsjáandi né algjör. Slyngasti og víðfrægasti rithöfundur islenzkur er nýlega kominn úr ferð umhverfis jörðina. Hann bar hvarvetna með sér hróður Islands. Nokkuð hefir hann þegar sagt frá förinni, hélt m. a. um hana alllangt erindi í samkomuhúsi í Reykja- vík, og hlýddu færri en vildu sakir þrengsla. Ég hefi verið að vonast eftir því, að þessi fyrirlestur kæmi á prenti, eins og sjálfsagt virtist, þar sem svo merkur maður átti í hlut, og að svo miklu tilefni. En af því hefir ekki orðið, og skal því mál skáldsins ekki rakið hér að ráði, en aðeins nefnd þrjú atriði af þeim, er ég ætla, að ekki geti farið á milli mála, að séu rétt hermd. í fyrsta lagi varð skáldinu tíðræddast um trúarbrögð og trú- arskoðanir, og það, er honum bar fyrir augu og eyru í því sam- bandi, hvort heldur vestur í 'Ameríku eða austur í Kína og á Indlandi. Hvað sem líður skoðunum Kiljans á þessum mál- um og ummælum hans um hinar og þessar trúarstefnur, virt- ist hann hafa lifandi áhuga á þeim, — hugur hans flögra um þau likt og fluga um ljós.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.