Kirkjuritið - 01.04.1958, Qupperneq 28
170
KIRKJURITIÐ
1 öðru lagi hlaut það að vekja nokkra athygli, að hann tal-
aði um kommúnismann sem trúarbrögð, er Gyðingur í Lund-
únum (þ. e. Karl Marx) hefði fnudið upp. En það verður
látið hér liggja á milli hluta.
En í þriðja lagi sagði skáldið, að Múhameðstrúin hefði sögu-
legan grundvöll, — sem kristindóminn vantaði.
Þessi fjarstæða hefir raunar oft heyrzt áður, en hún stafar
annað hvort af vanþekkingu eða ófeilnum áróðri, — nema
hún sé fyndnitilraun. Þvi að öllum getur orðið á að slá vind-
högg.
En hvað sem hér býr að baki, leiðir þessi fullyrðing hug-
ann að ákveðinni hættu. Sú hætta felst ekki nema að litlu leyti
í því, að Kiljan skuli láta sér þetta um munn fara, þótt sumir
líti eflaust upp til hans sem Búdda og telji orð hans óskeik-
ula véfrétt. Mesta hættan er sú, að vér, sem nú er falið að
gæta erfða kristins dóms í landinu, sofnum á verðinum, þegar
sízt skyldi og þar sem mesti háskinn er búinn.
Hvað sem annars má segja um kristnilíf og kristnihald vor
Islendinga á siðari öldum, er óvefengjanlegt, að haldið var að
mönnum ákveðinni kenningu og þeim veitt skýr fræðsla um
kristindóminn fram yfir síðustu aldamót. Algengustu húslestr-
arbækurnar, Vídalínspostilla og Péturshugvekjur, vitna greini-
lega rnn það. Passíusálmarnir, sem flestir kunnu meira og
minna utan að, ekki síður. Sama máli skiptir um það, sem ef
til vill var hér áhrifaríkast, — barnalærdómskverin. Helga-
kver er þar nærtækasta og bezta dæmið. Þessi kver lærðu börn
almennt utan að, og mikið af þeim lærdómi tolldi í þeim til
æviloka. Allur þoi’ri manna taldi og víst, að það væri rétt,
sem stæði í kverinu.
Ég skal hiklaust játa, að sú trúfræði, sem nefndar bækur
lýsa, er alls ekki vafalaus sannindi í öllum atriðum. Kristin-
dómurinn væri hvorki líf né kenning, ef allir væru alveg
sammála um hann á hverjum tíma. En þær byggðu á því,
sem menn vissu þá sannast um kristindóminn og helztu lær-
dómsmenn töldu réttasta skýringu á honum. Og það, sem hér
skiptir mestu máli, er þetta: Vegna þess að kristindómurinn