Kirkjuritið - 01.04.1958, Qupperneq 30

Kirkjuritið - 01.04.1958, Qupperneq 30
172 KIRKJURITIÐ til Rómar og ganga á páfafund til að finnast, að þeir hafi fast land undir fótum í trúarefnum, — og til að sækja sér drottinlega blessun. Slíkt á að vera unnt hér heima. Hitt er samt enn háskalegra, ef menn eins og Halldór Kiljan Laxness hafa gaman af að láta það fljúga, að kristindóminn skorti sögulegan grundvöll, — og einhver kann að trúa þvi. Þetta eru rauð ljós, er sýna, að eitthvað er bogið við vöku og starf kirkjunnar. Og því skylt að athuga sinn gang. Og hér er áreiðanlega bent á eitt, sem ekki er eins og það á að vera. Þörf hugmynd. Góður og reyndur skólamaður vék nýlega að því á fundi, að þess væri þörf að koma á meiri fjölbreytni í skólakerfinu. I því sambandi benti hann á atriði, sem oftar hefir borið á góma, hvað það er fátæklegt og fáránlegt, að allir háraðsskól- arnir skuli vera steyptir í sama móti, — sams konar hlekkir í fræðslukeðjunni. Fyrirmyndir þeirra eru þó af allt annarri gerð. Dönsku lýðháskólarnir hafa alltaf lagt megináherzlu á hugarfarslega vakningu og starfshvöt, — bein fræðsla aðeins skipað annað rúm. Markmið þeirra fyrst og fremst að hrífa menn með kristilegum hugsjónum og vekja þeim föðurlands- ást í brjósti. Stappa í þá stálinu og efla framkvæmdaþrá þeirra til heilla lýði og landi. Sannfæringin sú, að maðurinn sjálfur sé mest verður, siðgóður og fjölhæfur áhugamaður vænlegri til mikils og góðs þegnskapar en einhæfur múgamaður, þótt lokið hafi góðu prófi í sérgrein sinni. Hvers vegna er ekki einhver íslenzku héraðsskólanna látinn starfa þessu líkt, og séð, hvernig það gefst? Heyrt hefi ég, að skóli Aðventista í Hlíðardal fylgi þessari línu að nokkru og reynist prýðilega. Hægurinn hjá að fara aftur í sama far- veginn, ef tilraunin bendir til, að breytt hafi verið um til ills. Samt er vist, að eitthvað verður að breyta til í þessum mál- um fyrr en seinna. Það mun fáum leynast.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.