Kirkjuritið - 01.06.1958, Qupperneq 7

Kirkjuritið - 01.06.1958, Qupperneq 7
KIRKJURITIÐ 245 kirkjunnar og aðra andlega leiðtoga að kynna sér, hvað það er og hvernig verði þar helzt úr hætt. Það er áreiðanlega meira virði en öll landspróf og aðrar umræður og átök um það, hvort þessir og hinir hafa lært meira eða minna í köldum fræðigreinum. Heilbrigð lífsskoðun verður alltaf mests virði í mannlegum félagsskap, og fyrir hvern einstakling. Umberto Italíukonungur veitti eitt sinn prestum mótmælenda í ríki sinu áheym, svo að þeir gætu borið fram óskir sínar. Er til fundarins kom, furðaði hinn kaþólska konung mjög, hve stefnumar vom margar og báru ólík nöfn. „En hvað þér emð marglitir!" sagði hann. Valdensaprestur varð fyrir svömm: „Það er með oss eins og her yðar hátignar,“ svaraði hann. „Þar eru margs konar herdeildir, er heita næsta ólíkum nöfnum og bera margbreytilega einkennisbúninga. En allar þjóna þær sama konungi og bera sama fánann. Vér mótmælendur köllumst ýmsum nöfnum. En vér höfum aðeins einn konung — Krist. Og merki vort er lika hið sama: Fagnaðarerindi Drottins." * Kristinn maður á hlut í tveim heimum. Starfið tengir hann við jörðina, bænin við himininn. — Stöcker. * Varaðu þig á smásyndunum. Mundu, hve litið ský getur hulið sólina °g varpað skugga á allt umhverfið. —- S. W. Pentridge. * Ef vér þekktum marga málkunningja vora niður í kjölinn, mundum vér vera mjög nærgætin í þeirra garð, og afsaka það, sem oss finnst und- arlegt og andkannnalegt í fari þeirra. — J. R. Miller.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.