Kirkjuritið - 01.06.1958, Qupperneq 47
KIRKJURITIÐ
285
Fjöldi maiiiis af öllum stéttum og stigum árnaði séra Friðriki Frið-
rikssyni heilla á níræðisafmælinu. Sjálfur lék hann á als oddi og lét ekki
sjá á sér nein þreytumerki allt til kvölds. Á heiðurssamkomu, sem honum
var haldin í K.F.U.M. um kvöldið, flutti hann tvær ágætar ræður. I ann-
arri þakkaði hann með fögrum orðum Guðbrandsbibliu (ljósprentaða),
sem biskupinn fænði honum að gjöf
frá hinu ísl. Biblíufélagi.
Þess má og geta til marks um
það, hve séra Friðrik er andlega
Em, að við skólauppsögn Mennta-
skólans í Reykjavík 15. júní s. 1.,
mætti hann sem 65 ára stúdent, og
hélt þá langa ræðu á latínu, sem
verða mun óheyrendum ógleyman-
leg. Bæði að efni og framsetningu
var hún ágæt.
Séra Eiríkur 1». Stefáns-
son fyrrv. próíasl ur varð átt-
ræður 30. mai s. 1. Hann á nú
heima á Laugarvatni og er mjög
em. Margir heimsóttu hann á af-
mælisdaginn.
tiudfrœdipróf. Eftirtaldir menn luku nýlega guðfræðiprófi: Hjalti
Guðmundsson (2. eink. betri 1501/2 stig), Jón S. Bjarman (1. eink. 165l/3
st.), Oddur Thorarensen (2. eink. betri 144% st.) og Sigurvin Elíasson
(2. eink. betri 156% st.).
Jíýr skirnarfoiit ur í Miðgaróakirkju. Miðgarðakirkju í
Grimsey var, eins og áður getur, gefinn útskorinn skimarfontur úr tré.
Grímsey hefir, eins og áður getur, verið gefinn útskorinn skírnarfontur
úr tér. Vinnuna gáfu frú Kristín Valdimarsdóttir i Grenivik í Grimsey
og börn hennar til minningar um mann hennar og föður þeirra. Á skím-
arfontinum eru myndir af Jesú„ er hann blessar börnin, góða hirðinum
og lækninum, er býður: Statt upp og gakk. Formaður sóknamefndar, Einar
Einarsson, skar þessar myndir. Skímarskál úr silfri gáfu Sigurbjörn Sæ-
mundsson á Sveinsstöðum í Grímsey, börn hans og tengdabörn til minn-
ingar um konun hans og móður þeirra, Sigrúnu Torfadóttur. Hvorttveggja,
fonturinn og skálin, er hinn bezti gripur.