Kirkjuritið - 01.06.1958, Qupperneq 49

Kirkjuritið - 01.06.1958, Qupperneq 49
KIRKJURITIÐ 287 lestur Ritningarinnar og þó fyrst og fremst, að Biblían yrði þjóðinni í sannleika opin Biblía með allri þeirri blessun, sem þvi fylgdi fyrir þjóð- lífið. Endurskoðendur félagsreikninga voru endurkjörnir þeir séra Bjarni Jónsson vígslubiskup og Þorvarður J. Júlíusson, framkvæmdastjóri Verzl- unarráðs. Er raunverulegum aðalfundarstörfum var lokið, flutti Dr. Árni Árna- son, fyrrv. héraðslæknir, erindi um ástand og horfur i kristni og þjóðlífi og minntist á margt athyglisvert, bæði það sem neikvætt er og jákvætt. Biskup þakkaði snjallt erindi og þakkaði einnig fundarmönnum áhuga þeirra og fundarsókn og bað þeim öllum blessunar Guðs. Sleit biskup því næst fundi, eftir að fundarmenn höfðu beðið sameiginlega „Faðir vor“ og biskup lýst drottinlegri blessun. Fundarsókn var góð, og bar fundurinn vott um vaxandi áhuga fyrir málefni félagsins. fr'rá Bíliludal er ritstjóm Kirkjuritsins skrifað á þessa leið: „Fyrsta maí, frídag verkamanna, var hér skrúðganga til kirkju að til- hlutan verkalýðsfélagsins hér. Hátiðahöld dagsins, sem voru fjölbreytt, hófust þannig með guðsþjónustu. Var guðsþjónustan fjölsótt. Venjulegast er, að þann dag séu farnar kröfugöngur, en ekki skrúðgöngur. Mun ný- kjörinn formaður félagsins, Magnús Einarsson verkamaður, hafa átt mest- an þátt í þessari nýbreytni. . . . Meðan gengin var kröfuganga með alls kyns kröfuspjöldum i höfuðborg landsins, og fluttar áróðursræður með vig- orðum miklum, gekk þögul fylking undir þjóðfánanum á Bildudal og hlýddi siðan sú fylking messu í kirkjunni.“ * ERLENDARFRÉTTIR Erik •lonsen Álnlioi’gnrliisku |i lagði nýlega hornstein að nýrri sjómannakirkju og sjómannaheimili dönsku í Stepney á Englandi. Iloila hcfir risiO á ný í Englandi út af hinni ströngu helgidaga- löggjöf. Þar eru margar skemmtanir bannaðar á sunnudögum, jafnvel leiksýningar a. m. k. sums staðar. Vmsum finnst hér gæta of mikils strang- leika, enda mikið á milli þess og hins, þar sem sunnudagurinn er nálega eingöngu talinn hafa gildi sem skemmtidagur og viðbúið virðist jafnvel

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.