Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 10

Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 10
296 KIRKJURITIÐ Eiga þeir að rætast? Eða á sinnuleysi og andvaraleysi að krossfesta þá? Vinur minn einn sagði við mig um daginn um leið og við mættumst á götu: „Ný kirkja á íslandi, endurnýjuð — eða engin innan skamms." Ég svaraði: „Þú getur líka orðað þetta á annan veg: „Nýtt þjóðlíf, ný þjóð — eða engin innan skamms. Gæti ekki hugs- azt, að aðeins væri um þessa tvo möguleika að ræða?“ Guð, veit oss rétt þinn, íslandi vakningu, afturhvarf, þjóð- líf, sem þroskast á guðsríkisbraut. Sigurbjörn Einarsson. 1 stað þess að skelfast, fel ég mig af hug og hjarta í hendur lmns, sem kallaði mig mér að óvörum til þessa lífs og minntist mín strax, þegar ég var enn í móðurlífi. Hann hefir jafnan skýlt mér með skikkju sinnar miskunnar, og þegar stundin kemur, mun hann kalla mig til sín aftur. Hann lét mig ekki einan, þegar ég syndgaði áhyggju- laust og í léttúð, — mundi hann þá yfirgefa mig nú, er ég leita hans sanniðrandi í ást og trausti? — Francesco Petrarca. * Vér tölum oft um að vitna um Krist, án þess að vér gerum oss fulla grein fyrir, hvað það þýðir. Ættum vér þó að vita það m. a. úr lagamálinu, hvað í vitnisburði felst. Gildi vitnisburðarins felst í því, hversu tekst að sannfæra aðra. Og hér nægir ekki einlæg sannfæring vor, heldur verður persónuleg reynsla að standa að baki orðanna. Postularnir voru sannir vottar. Þá Pétur og Jóhannes skorti hvorki einurðina né kjarkinn, er þeir voru kallaðir fyrir ráðið, og þeim var aðeins fögnuður að því að vera smánaðir sakir Frelsarans. En höfuð- gildi vitnisburðar þeirra fólst samt í þeirri staðreynd, að hann var þeirra eigin reynsla, „því aö vér getum ekki annaö en talaö þaö, sem vér höfum séö og heyrt“. (Post. 4, 20). — Hugh Redwood.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.