Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 22

Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 22
308 KIRKJURITIÐ Séra Vilhjálmur Briem fyrrum sóknarprestur andaðist 1. þ. m., níræður að aldri, fæddur 18. jan. 1869. Hann vígðist til Goðdala 15. apríl 1894 og þjónaði þeim til 1899. En prestur á Staðastað var hann árin 1901—1912. Lét hann þá af prestsskap sökum heilsubrests og fluttist til Reykjavíkur og var síðan starfsmaður Landsbankans og Söfnunarsjóðs íslands. Hann kvæntist 1894 Steinunni Pétursdóttur, bónda á Álf- geirsvöllum. Þau eignuðust 3 börn. Á 50 ára hjúskaparafmæli þeirra hjóna stofnuðu þau við Söfnunarsjóðinn Fæðingargjafa- sjóð íslands og 5 árum síðar Styrktarsjóð Fæðingargjafasjóðs íslands. Nema þessir sjóðir báðir nú yfir 320.000 kr. Séra Vilhjálmur var ástsæll af safnaðarfólki sínu, svo að það vildi á engan hátt missa hann frá prestsskap. Búhöldur var hann einnig góður og heimili þeirra hjóna öndvegisheimili og hinn bezti skóli fyrir unga pilta og stúlkur. Séra Jóhann Briem, sóknarprestur frá Melstað, lézt 8. júní á 77. aldursári, fæddur 3. desember 1882. Hann vígðist prestur að Melstað 28. júní 1912 og þjónaði því prestakalli síðan alla tíð til 1954. Hann þjónaði að auk Tjarnarsókn 1919—23, og settur var hann prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi fardagaárið 1922 —1923. Hann kvæntist 1912 Ingibjörgu ísaksdóttur, verzlunarmanns á Eyrarbakka, og lifir hún mann sinn. Þau eignuðust 4 börn. Séra Jóhann var ágætur prestur, jafnt á stéttunum sem í stólnum. Einkum dáðu menn tón hans, var rödd hans hrein og fögur. Öll framkoma hans var svo prúðmannleg, að af bar. Hann var bæði mikilsvirtur og ástsæll prestur. Vér vottum þessum bræðrum vorum virðingu og þökk með því að rísa úr sætum. Guð, blessa þá og ávöxt starfa þeirra. Látnar prestsekkjur. Frú Anna Guörún Þorkelsdóttir, ekkja séra Guðmundar pró- fasts Einarssonar að Mosfelli, andaðist 13. marz 83 ára að aldri, fædd 7. desember 1875. Hún var göfug höfðingskona, ágætlega menntuð og fróð, vinsæl og gestrisin. Frú Elín Guöbjörg Guömundsdóttir, ekkja séra Gísla Kjart- anssonar síðast prests að Sandfelli í Öræfum, lézt 9. apríl á 83. aldursári, fædd 4. sept. 1876. Hún var þrekmikil gáfukona,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.