Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 25

Kirkjuritið - 01.07.1959, Blaðsíða 25
KIRKJURITIÐ 311 Hann varð stúdent 1955 og kandídat í guðfræði síðastliðið vor. Hann er kvæntur Guðmundu Guðmundsdóttur. Nýir guðfræðikandídatar. Um miðjan vetur útskrifuðust úr guðfræðisdeildinni þrír kandídatar: Frank Halldórsson, Jón Sveinbjörnsson og Matt- hías Frímannsson. En í vor Ingþór Indriðason og Skarphéðinn Pétursson. Óveitt prestaköll eru þau, sem hér segir: 1. Kirkjubæjarprestakall, er séra Einar Þór Þorsteinsson á Eiðum þjónar. 2. Eiðaprestakall, er hinn sami þjónar. 3. Hofsprestakall í Austur-Skaftafellsprófastsdæmi, er pró- fasturinn að Kálfafellsstað þjónar. 4. Flateyjarprestakall í Barðastrandarprófastsdæmi, er enn þjónar settur prestur þar, séra Sigurvin Elíasson. 5. Brjánslækjarprestakall í Barðastrandarprófastsdæmi, er sóknarpresturinn í Sauðlauksdal þjónar. 6. Ögurþing í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi, er prófastur- inn á Isafirði þjónar. 7. Staðarprestakall í Grunnavík í Norður-ísafjarðarprófasts- dæmi, er sóknarpresturinn í Bolungarvík þjónar. 8. Árnesprestakall í Strandaprófastsdæmi, er prófasturinn á Hólmavík þjónar. 9. Grímsey í Eyjafjarðarprófastsdæmi, er séra Pétur Sigur- geirsson á Akureyri þjónar. 10. Hofsprestakall í Vopnafirði, er séra Jakob Einarsson pró- fastur þjónar áfram til 1. október. 11. Raufarhöfn í Norður-Þingeyjarprófastsdæmi, er prófastur- inn að Skinnastað þjónar. 12. Laufásprestakall í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi. En þar fór prestskosning fram í gær. Kirkjuvígslur og kirkjubyggingar. Á sumardaginn fyrsta vígði ég Jcirkju Óháða safnaðarins í Reykjavík. Stóð bygging hennar yfir tiltölulega skamman tíma, því að einhugur safnaðarins var mikill að verkinu, dugnaður og fórnfýsi. Er kirkjan prýðilegt Guðshús.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.