Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 28

Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 28
314 KIRKJURITIÐ Alls sungu á árinu 57 kirkjukórar opinberlega 80 sinnum, auk söngs við kirkjulegar athafnir. Þess háttar samsöngvar eru nú orðnir 1572 frá því, er söngmálastjóri hóf starf sitt, 1941. Sex kirkjukórasambönd héldu söngmót: 1. Kirkjukórasamband Snæfellsnesprófastsdæmis að Breiða- bliki 30. ágúst. Þátttakendur 5 kirkjukórar, um 60 manns. 2. Kirkjukórasamband Vestur-Skaftafellsprófastsdæmis að Klaustri 6. desember. Þátttakendur 7, allir kirkjukórar sam- bandsins, um 120 manns. 3. Kirkjukórasambönd Húnavatns og Strandaprófastsdæma að Hvammstanga 23. og í Reykjaskóla 25. marz. Þátttak- endur 3 kirkjukórar, um 50 manns. 4. Kirkjukórasamband Dalaprófastsdæmis að Nesodda 5. apríl. Þátttakendur 4 kirkjukórar, um 80 manns. 5. Kirkjukórasamband Mýraprófastsdæmis í Borgarnesi 26. apríl. Þátttakendur 5 kirkjukórar, um 100 manns. 6. Kirkjukórasamband Kjósarsýslu 31. maí. Þátttakendur 3 kirkjukórar, um 50 manns. Þannig hafa verið haldin alls 55 kirkjukórasöngmót. Söngskóli Þjóðkirkjunnar var haldinn sem áður frá 1. nóv- ember til 1. maí. Kennarar voru Sigurður Birkis söngmálastjóri, Jón ísleifsson organleikari og Sigurður Þórðarson söngstjóri. Námsgreinar: Söngur (tónmyndun), orgelspil, söngstjórn og messusöngur. Nemendur voru 12 um lengri eða skemmri tíma, sumir allan veturinn. Ennfremur var tveimur kennt annars staðar á vegum Söngskólans. Alls eru nú nemendur Söngskól- ans orðnir 223. Söngmálastjóri kenndi 8 guðfræðinemum tón, tónmyndun og messusöng 2 stundir á viku allan veturinn. Hafa nú alls 115 guðfræðinemar notið kennslu hans í Söngskólanum. Kjartan Jóhannesson organleikari hélt að tilhlutan Kirkju- kórasambandsins undirbúningsnámskeið í janúar fyrir organ- leikara. Þrjú pípuorgel voru vígð á árinu: í kirkju Neskaupstaðar 21. sept., í Hóladómkirkju 26. okt. og í ísafjarðarkirkju 14. des. Á þeim 8 árum, sem liðin eru frá stofnun Kirkjukórasam- bands Islands hafa margir kennarar ferðazt um landið á veg- um þess og kennt kórunum. Eru þeir 7 síðastliðið starfsár, og hafa þeir kennt 51 kirkjukór í 73 vikur.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.