Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 29
KIRKJURITIÐ
315
Söngmálastjóri lýkur skýrslu sinni með þessum orðum:
„Vér þurfum að hlúa betur að söngnum úti um hinar dreifðu
byggðir lands vors. Söngnum, þessari dásamlegu Guðsgjöf, sem
er allri þjóðinni ómetanleg til andlegrar uppbyggingar og fé-
lagslegrar þroskunar og er oss öllum ómissandi við allar meiri
háttar athafnir í lífi hvers manns og gleðigjafi í hinni erfiðu
baráttu við hin þreytandi áhrif einangrunarinnar og óblíðu
veðráttunnar. Oss er því nauðsynlegt að fá sem fyrst fleiri
farsöngkennara, sem ferðast stöðugt meðal fólksins, úti um
landið og kenna því að nota sínar fögru söngraddir. Og ég er
ekki í neinum efa um það, að þar sem þessi söngstarfsemi er
byggð á kirkjunni — þessari göfugustu og dýrmætustu stofnun
þjóðarinnar —- að hún muni verða til óendanlega mikillar bless-
unar.“
Þessi orð lýsa vel brennandi áhuga söngmálastjóra, sem
aldrei fölskvast.
Bænadagurinn.
Hinn almenni bænadagur þjóðkirkjunnar, 3. maí, mun hafa
orðið oss blessunarríkur. Leggja margir prestar áherzlu á það
að messa þá á sem flestum kirkjum.
Vísitazía biskups.
Á síðastliðnu sýnódusári vísiteraði ég þrjú prófastsdæmi,
Borgarfjarðar, Mýra og Snæfellsness, og stóð vísitazían yfir
frá 10. júlí til 3. ágúst að báðum dögunum meðtöldum. Frá
henni segir í desemberhefti Kirkjuritsins, og læt ég hér nægja
að vísa til þeirrar skýrslu. En héraðspróföstum og prestum,
sóknarnefndum, safnaðarfulltrúum og söfnuðum flyt ég beztu
þakkir fyrir ágætar viðtökur og samstarf og hve þáttur þeirra
var mikill í því, að vísitazían var svo ánægjuleg sem raun
varð á.
Utanför biskups.
Fullri viku eftir vísitazíuna varð ég að fara utan til biskupa-
fundar Norðurlanda í Ráttvik í Dölunum í Svíaríki, er haldinn
var dagana 13.—17. ágúst. Undir lok fundarins lagði ég af stað
til Noregs og sat þar fund Sameinuðu Biblíufélaganna 18.—21.
ágúst. Segir nánar frá fundum þessum í októberhefti Kirkju-