Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 30
316
KIRKJURITIÐ
ritsins, og skírskota ég til þess. Mér þótti einkum vænt um það,
að ég átti kost á því að sitja fund Sameinuðu Biblíufélaganna
og kynnast helztu forystumönnum þeirra. Tel ég það nauðsyn-
legt, að biskup íslands sæki á komandi árum slíka fundi sem
þennan.
Nokkrir kirkjulegir fundir.
Félag presta í Hólastifti hinu forna átti á síðastliðnu sumri
60 ára afmæli, en Prestafélag íslands 40 ára. Héldu félögin
afmælisfundi sömu dagana, laugardaginn og sunnudaginn 9.
og 10. ágúst, fyrst að Sauðárkróki og síðan að Hólum í Hjalta-
dal. Þóttu hátíðahöldin vel takast.
Stjórn Prestafélags Hólastiftis skipa nú: Prófastarnir, séra
Sigurður Stefánsson, formaður, séra Helgi Konráðsson, séra
Friðrik A. Friðriksson, séra Páll Þorleifsson og séra Þorsteinn
B. Gíslason. Hyggst stjórnin munu gefa út minningarrit á
þessu ári.
En stjórn Prestafélags Islands skipa: Séra Jakob Jónsson,
formaður, séra Sigurbjörn Einarsson biskup, séra Jón Þor-
varðsson og prófastarnir, séra Sigurjón Guðjónsson og séra
Sveinbjörn Högnason.
Prestskvennafélag íslands heldur aðalfund sinn í dag í
Reykjavík. í stjórn þess eru frúrnar: Anna Bjarnadóttir, for-
maður, Áslaug Ágústsdóttir, Dagný Auðuns, Hanna Karlsdóttir,
Jónina Björnsdóttir, María Ágústsdóttir og Steinunn Magnús-
dóttir.
Almennur kirkjufundur var haldinn dagana 11.—13. október,
og hefir þegar verið skýrt frá helztu ályktunum hans í Kirkju-
ritinu. í undirbúningsnefnd fundanna eru nú þessir menn: Gísli
Sveinsson, formaður, Ásmundur Guðmundsson, séra Jóhann
Hannesson, Ólafur Ólafsson, Páll Kolka, Sigurbjörn Þorkelsson
og Sigurjón Guðjónsson. Einn þeirra, sem kosnir voru í undir-
búningsnefndina, er nú látinn, Ólafur B. Björnsson, ritstjóri á
Akranesi.
Kirkjuþingið.
Um kirkjuþingið 18.—31. október get ég verið fáorður, því
að skýrsla um ályktanir þess og afgreidd mál hefir verið send
prestum landsins og mjög mörgum öðrum. Mun óþarft, að ég