Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 33

Kirkjuritið - 01.07.1959, Side 33
KIRKJURITIÐ 319 veiti drukknum mönnum ókeypis næturgistingu svo og dvöl á upptökuheimili þess, eftir því sem ástæður leyfa. Styrktarsjóður munaðarlausra barna, sem nýlega hefir verið stofnaður, er nú orðinn 24841.87 kr. Vegna sjóslysanna miklu í febrúarmánuði, er togarinn Júní og vitaskipið Hermóður fórust, fór fram almenn fjársöfnun með þjóðinni. Söfnuðust alls um 4292800 kr. Þar af 1863773.16 til Biskupsskrifstofunnar. í fjársöfnunar og úthlutunarnefnd voru auk biskups: Aðalsteinn Júlíusson vitamálastjóri, Adolf Björnsson, formaður Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, séra Garðar Þorsteinsson prófastur og Pétur Sigurðsson, forstjóri Land- helgisgæzlunnar. Nefndin réð sér til aðstoðar Guðlaug Þorvaldsson viðskipta- fræðing, og leysti hann mikið verk af höndum. Fullnaðarúthlut- un fer vonandi fram næstu daga. Til sjómannastofu á Raufarhöfn um síldveiðitímann veitti ríkissjóður 8000 kr. styrk, Stórstúka íslands 3000 kr. og salt- endur á Raufarhöfn 4500 kr. Forstöðumann stofnunarinnar réð eg Sigurvin Élíasson guðfræðikandídat, en umsjón með rekstr- inum hafði héraðsprófastur, séra Páll Þorleifsson, Skinnastað. Kirkjubyggingasjóður nam um síðustu áramót 2.307.328.35 kr. Stjórn hans skipa auk biskups séra Gunnar Árnason og séra Sveinbjörn Högnason prófastur. Framkvæmdastjóri er séra Sveinn Víkingur. Úthlutun fór fram 19. þ. m. sem hér segir: Vaxtagreiðslur til kirkna vegna eldri lána...... kr. 28.000 Lán til 20 ára vegna viðgerðar og breytinga á 15 kirkjum ...................................... — 336.000 Lán til 50 ára vegna byggingar 8 nýrra kirkna .. — 232.000 Brýn nauðsyn er þess, að framlag ríkissjóðs verði árlega a. k. 1000000 kr. í stað þess, sem það hefir áður verið, aðeins 500000 kr. Fjárveitingar til kirkjumála á 15. grein fjárlaga fyrir 1959 eru nálega jafn háar sem á 14. grein í fyrra. Aðallækkun er ú liðnum til framkvæmda í Skálholti úr 1200000 kr. í 500000 kr. En nokkrir liðir hafa hækkað, t. d. hefir fjárveiting til eflingar kirkjusöngs hækkað um 20000 krónur. Utanfararstyrkur presta er hinn sami og áður. Fjárveitingar á 20. grein eru hinar sömu sem 1958: Til bygginga á prestssetrum 1700000 kr., greiðslu heimtaugargjalda

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.