Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 34

Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 34
320 KIRKJURITIÐ 144000 og útihúsa 720000 kr. Við greiðslu þessara fjárhæða verður þó haldið eftir 5 af hundraði. Þörfin á byggingum prestsseturshúsa er orðin svo mikil og byggingarkostnaður svo hár, að prestastefnan verður að skora á Alþingi og ríkisstjórn að hækka ofantaldar fjárveitingar á næsta ári. Kirkjumál á Alþingi. Á prestakallaskipuninni voru gerðar þessar breytingar: Eiða og Hjaltastaðarsóknir mynda Eiðaprestakall, og eru Eiðar prestssetur. En Kirkjubæjarprestakall nær yfir Kirkju- bæjar, Hofteigs, Eiríksstaða, Sleðbrjóts og Möðrudalssóknir. Kirkjubær er prestssetur, en kirkjustjórninni heimilt að flytja prestssetrið á annan stað í Kirkjubæjarsókn, ef hentara þykir. í Hraungerðisprestakalli verði Laugardælasókn nefnd Sel- foss-sókn. Prestssetrið í Hvanneyrarprestakalli verði nefnt Staðarhóll. Þegar prestaskipti verða í Æsustaðaprestakalli, er kirkju- stjórninni heimilt að flytja prestssetrið að Auðkúlu, enda liggi fyrir samþykki meiri hluta safnaðarmanna í prestakallinu. í Vatnsendaprestakalli er kirkjustjórninni heimilt að selja Vatnsenda og flytja prestsserið á hentugri stað, enda liggi fyrir samþykki meiri hluta safnaðarmanna í prestakallinu. Frumvarp varðandi þjónustualdur biskups var borið fram í neðri deild Alþingis og það lagt til, að hann hækkaði úr 70 ár- um í 75, ef % hlutar kjósenda skoruðu á biskup að þjóna áfram eftir sjötugsaldur. Frumvarpið hlaut eindregin meðmæli kirkju- þings og kirkjuráðs og samþykki neðri deildar með 16:9 at- kvæðum, en efri deild felldi með 9:7. Enginn hreyfði nú tillögu um það, að biskup íslands skyldi framvegis sitja í Skálholti. Og frumvarp um kirkjugarða dag- aði uppi. Er óhæfilegur seinagangur orðinn á því máli. Biblíufélagið. Hrein eign félagsins í árslok 1958 var 343116.01, þar af pen- ingar í sparisjóðsbókum 110194.09 kr. Hafa Biblíur selzt fyrir um 150000 kr. og Nýja testamenti fyrir 9000 kr. Sjóvátrygg-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.