Kirkjuritið - 01.07.1959, Síða 41
KIRKJURITIÐ
327
hafa verið og eru það engu síður. Þær hafa verið um aldirnar
máttarstoðir prestsheimilanna, einhverra beztu menntasetra í
landinu. Það eru einmitt svo oft konurnar, sem eru æðstu
prestar og varðveita örugglegast arf kristindómsins frá einni
kynslóð til annarrar.
Ég votta ykkur og prestunum heiður og þökk fyrir hvert vel
unnið verk.
Og ég bið ykkur öllum sameiginlega blessunar Guðs og að
hann styrki störf ykkar í söfnuðunum um land allt, svo að
íslenzka þjóðin sé og verði í raun og sannleika kristin þjóð.
Þessi dagur, Jónsmessan, er afmælishátíð kristnitöku hennar.
Við birtu sumarsins, er sólin rís hæst á himinboga, ákváðu
íslendingar að ganga Hvíta-Kristi á hönd og snúa sér frá
myrkraöflum heiðninnar. Vitrustu og beztu menn þeirra hétu
því að helga sig honum í sigurgjöf og lifa betur og syndvarlegar
en áður. Árlega þennan dag skyldum vér endurtaka það heit.
Svo styðji oss Guð giftu.
Hann leiði íslendinga um ókomin ár, svo að þeir gangi í birt-
unni og hafi ljós lífsins.
I Jesú nafni Amen.
Ásmundur Guömundsson.
IVýr vígsluliiskup Xurrturlamls.
Séra Sigurður Stefánsson prófastur á Möðruvöllum hefir ver-
ið löglega kosinn vígslubiskup í Hólastifti. Hlaut 15 atkvæði.
Séra Friðrik A. Friðriksson prófastur á Húsavík fékk 11 atkv.
Séra Benjamín Kristjánsson á Laugalandi 2 atkv.
Séra Sigurður Stefánsson er fæddur 10. nóv. 1903. Veittir
Möðruvellir í Hörgárdal 1928, og hefir verið þar síðan. Kona
hans er María Ágústsdóttir.