Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 43

Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 43
KIRKJURITIÐ 329 Síðan brauzt Helgi menntaveginn. Þrátt fyrir það, að hann hafði þá úr litlu að spila, munu þau ár hafa verið hvað björt- ust. Glettni hans naut sín hvað bezt í hópi skólabræðranna, einnig trúnaður. 17 stúdentanna frá 1924 gengu í guðfræðideildina. 15 tóku síðar prestsvígslu. Það er met í langan tíma hér á íslandi. Eng- um er gert rangt til, þótt fullyrt sé, að Helgi var ekki sízt til þess fallinn, — hvorki þá né nú finnst manni, að hann hefði átt að verða annað en hann varð, — Drottins þjónn. Hann vígðist fyrst til Bíldudals 28. maí 1928. Sjálfum fannst honum það vera handleiðsla. Og kær varð honum þessi fyrsti söfnuður, og ekki lét hann á sér standa að sýna skyldurækni í þjónustunni, þótt erfið væri annexíuleiðin, einkum á vetrum. Oft farin fótgangandi. Hans var saknað, þegar hann flutti að Höskuldsstöðum 1932. Engan mann hefi ég vitað afla sér skjót- ari vinsælda en hann gerði þar. Rétt eins og kunnáttumaður slægi á hljómfagran streng. Sumum var hann að vísu kunnugur áður, en hann vann sér strax ást og virðingu allra. Þar kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Jóhönnu Þorsteins- dóttur frá Reykjum í Hrútafirði. Af jarðneskum gæðum varð það hans mesta gæfa. 1934 fékk hann Reynistaðarklaustursprestakall og settist að á Sauðárkróki. Þaðan hvarf hann aldrei. Prófastur varð hann 1952. Og þarna vann hann meira æfistarf en algengt er. Hnn var tvímælalaust góður prestur í stólnum, en enn meiri og sérstæðari á stéttunum. Þess vegna var hann allra manna vinsælastur. Öllum fannst hann hafa góðan hug til sín og rétta sér bróðurhönd. Ellefu ár þjónaði hann Hvammsprestakalli í Laxárdal, einnig fleiri sóknum lengur eða skemur. Hvar sem hann kom, þótti hann góður gestur. Raunar vann séra Helgi tveggja manna verk á Sauðárkróki, meðan heilsan entist. Hann kenndi frá því að hann kom og lengi vel við unglingaskólann, var síðan skólastjóri gagnfræðaskóla frá stofnun hans og lengst af síðan. Hann var hneigður til kennslustarfa, og ég hefi heyrt marga votta, að á þessu sviði ynni hann ágætt verk og yrði mikið ágengt. Sauðárkrókur ^nun lengi að því búa, er hann byggði upp á því sviði. Engan þarf að undra, þótt hann væri bókelskur og bókfróður. Hann fór ungur að safna bókum og átti að lokum eitt bezta

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.