Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 46

Kirkjuritið - 01.07.1959, Qupperneq 46
Pistlar Kristin breytni. Ágætir gestir sóttu oss heim við biskupsvígsluna. Tignastur þeirra og áhrifamestur var dr. Franklin Clark Fry, forseti Lút- erska heimssambandsins. Hann virtist hverjum manni vel. Ekki heldur að efa, að hérlendis eru menn yfirleitt miklir einingar- menn, og skilja hvílík nauðsyn hinum mörgu kirkjum er nú á því að sameinast til baráttu fyrir kristinni hugarstefnu um víða veröld. Óneitanlega gengur þó erfiðlega að brúa bilin milli kirkn- anna innbyrðis, og vantar ekki deilur um hina og þessa siði og kenningar. Ekki því að undra, þótt oss verði minna ágengt en skyldi við að sýna mönnum, sem játa önnur trúarbrögð, full- an skilning og einlægt bræðraþel í verki, meðau vér erum ósveigjanlegir í innbyrðis samskiptum — höngum rígfast í mannaboðorðum. En það, sem nú er spurt um af ókristnum mönnum, er ekki fyrst og fremst orð og siðir, heldur fram- koma, samskipti. Undirokuðum nýlenduþjóðum og örbirgum ríkjum, sem eru að rísa á legg suður í Afríku og austur í Asíu, finnst fátt um messur kristinna manna, ef ekki sést svart á hvítu, að þeir eru þeim sannir bræður í raun. I síðustu bók enska skáldsins, W. Somerset-Maughams: A Writers Note- book, er smákafli, sem mér skilst að lýsi vel þeim anda og áhrifum, sem vænzt skyldi af kristnum mönnum og aldrei verð- ur áhrifalaus. Þar segir: „Engin skáldsagnapersóna heimsbókmenntanna er yndislegri en Alyosha Karamazov (í Karamazovs-bræður eftir Dostov- jevskí). Og eins og allir fögnuðu fundi hans, getur ekki hjá því farið, að lesendum þyki mikið til hans koma. Hann hefur sviplík áhrif á mann og enskur júnímorgun, þegar loftið er þrungið af blómaangan og kveður við af fuglasöng, og svalsölt hafrænan strýkur upplöndin. Þú finnur, að það er sælt að lifa. Og þú finnur, að það er unaðslegt að njóta hins skemmtilega sam-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.