Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 47

Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 47
KLIRKJURITIÐ 333 félags Alyosha. Líferni hans er svo frábært og fagurt sem hugsazt getur; gæzka hans, — meðfædd og látlaus gæzka hans slík, að hjá henni virðast allar gáfur á sviði skynseminnar svo ósköp litlu skipta. Alyosha er svo sem ekkert gáfnaljós, og langt frá að vera nokkuð driftugur. Þér getur iðulega runnið í skap við hann, þegar svo stendur á, að uppsteitur heimsins krefst ákveðinna athafna. Hann er enginn framkvæmdamaður, varla að hann geti kallast maður heldur, næstum guðdómlega ómannlegur. Dyggðir hans eiga skyldara við aðgjörðaleysi en athafnasemi, hann er hógvær, umburðarlyndur og ákaflega þol- góður; dæmir aldrei aðra menn, skilur þá ef til vill ekki meira en svo, en ástúð hans í garð þeirra er alveg takmarkalaus. Þessi óeigingjama ákafa ástúð er að mínum dómi höfuðástríða sálar hans, þessi kærleikur, sem gerir holdlegan munað við- bjóðslegan, og jafnvel sjálfa móðurástina jarðneska. Hinn grimmlyndi Dostovjevski lét það þarna einu sinni eftir sér að vera góðsamur, og gerði Alyosha eins fríðan sýnum og hann á fagra sál. Hann er glaður eins og englarnir, sem aldrei hafa kynnzt þjáningu heimsins. Það fylgir honum sólskin. Blítt bros hans er betra en spekifyndni annarra. Honum er dásam- lega lagið að sefa órótt hjarta. Þeim, sem líður illa, er nærvera hans það sama og þér er svöl og mjúk ástvinarhönd á sóttheitu enni þínu“. Heimurinn þarfnast slíks kristniboðs og það lætur hann ekki ósnortinn. Listin getur ekki skipað sœti trúarinnar. Listunnendur er tiltölulega nýtt heiti og hugtak hér á landi. En nú fjölgar þeim næstum eins og flugum í sumarhitum. Ekki er það lastandi. Hitt er hugleiðingarefni, hvort listin getur fyllt upp tómrúmið, sem verður, ef trúin fjarar úr hug °g hjarta. Sú virðist skoðun margra, sem kemur fram í fleiri en einni mynd. Ég get hvorki skilið það né trúað því. Þess vegna birti ég hér því til áréttingar umsögn fyrrgreinds rithöfundar um þetta efni, og úr lokum sömu bókar og vísað var til: ,,Síðustu fimm árin hefi ég ef til vill bætt örlítið við þekkingu ®lna. Ég komst af hendingu í kynni við ágætan lífeðlisfræð- ing, sem leiddi til þess, að ég aflaði mér að minnsta kosti nokk- urrar yfirborðsþekkingar á heimsspeki líffræðinnar. Það er

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.