Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 49

Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 49
KIRKJUIIITIÐ 335 þá bölsýni, sem lýst er með ódauðlegum hætti í bók Prédikar- ans. Meiri en fegurð listarinnar, finnst mér sú fegurð, sem felst í hetjuskap mannsins, sem býður óræði heimsins byrginn". Fleira verður ekki hermt að sinni. Rétt er að taka fram, að Sommerset-Maugham hefur ekki talið sig Guðstrúarmann né finnast honum líkur til, að líf sé eftir dauðann. En bókinni lýk- ur samt með þeirri hugleiðingu, að viss mannleg göfgi sé æðri öllu, sem hann þekki. Því ,,kann svo að fara, að vitund þess, að þrátt fyrir allan veikleika og synd geti maðurinn auðsýnt svona dýrðlega göfgi á stundum, veiti manni nokkurt hæli fyrir örvæntingunni“. Vera má, að ég víki oftar að þessari bók. Það er óneitanlega ekki með öllu ófróðlegt að vita, hvað einhver mesti stílsnilling- ur og sagnaskáld þessarar aldar segir umbúðalaust um lífs- skoðun sína. Það er lika fleira en það, sem vér erum sammála um, sem °ss getur verið gagnlegt að lesa og heyra. »Sunnudagur á Þingvöllum“. Svo heitir grein, sem séra Jóhann Hannesson ritar í Alþýðu- blaðið 9. þ. m. Hér verða aðeins teknar nokkrar setningar sem sýnishorn um virðingu vorrar kynslóðar fyrir þessum helgi- stað þjóðarinnar með sínum þjóðgrafreit. • • • Kl. 11,20 knýr maður að dyrum, var hann mjög blóðugur, en þó ekki ýkjafullur. Spyr hann, hvort hjúkrunarkonan sé við °g geti bundið sár hans . . . En hann bað líka um deyfandi sprautu handa félaga sínum, sem hann hafði verið í áflogum Vlð, taldi hann, að sá maður hefði misst mikið blóð og væri óður mjög . . . Hafði hann komið á sendiferðabíl með félögum sínum hingað á hlaðið og sló þá til skiptis . . . €Jmferðin var geysimikil. Öll tjaldstæðin höfðu verið hreinsuð s. 1. viku, nú voru þau öll útsvínuð af flöskum, spýtum, dósum og umbúða- Pappir, matarleifum o.fl. ... 23 amerísk tjöld voru á völlunum um nóttina og 4 austur í Þjóðgarðinum. Vegalaust fólk var um 2 um nóttina allmargt og vantaði farartæki í bæinn. Tjalda- fólk flæktist að hótelinu, og fór lögreglan með það inn á vellina aftur og sleppti því þar, eins og sauðfé í haga. Annað var ekki h®gt að gera, eins og starfsskilyrði eru hér nú. ... íslenzk hjón austur í Vatnsvíkinni gátu ekki sofið fyrr en klukkan 6 að

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.