Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 50

Kirkjuritið - 01.07.1959, Page 50
336 KIRKJURITIÐ morgni, vegna ráfandi unglinga, er gerðu hávaða um nóttina nálægt tjöldum þeirra. — Önnur íslenzk fjölskylda kvartaði undan því, að amerískir hermenn hefðu grýtt tjöld þeirra . . . Hjá Ameríkumönnunum urðu tvö slys: Einn handleggsbrotnaði, annar hryggbrotnaði. Hafði hann borið stúlku á bakinu, en steig þá óvart öðrum fæti ofan í litla sprungu og brotnaði svo illa, að bein stóðu út úr bakinu á honum. Tóku félagar hans hann þá í bíl, helltu í hann svo miklu af brennivíni, að hann lá sem dauður og óku honum til Keflavíkur . . . Margar spurningar vakna í þessu sambandi. T. d.: Hvers vegna er þetta gert? Af hverju er það liðið, bæði af stjórnar- völdum og almenningi? Mundi íslendingum leyfast framkoma útlendinganna í þjóðgörðum annarra landa o. s. frv. ? Trúboð vanhelgunarinnar og áróður taumleysisins á hér mestan hlut að máli. Oss er ekki að verða neitt heilagt — hvorki staður né stund, dagur né hátíð. Drögum hvergi skóna af fótum vorum. Lútum ekki höfði fyrir neinu. Sú kynslóð, sem barðist fyrir þjóðfrelsinu, leit á Þingvelli sem heilaga jörð — vegna sögulegra minninga. Vér lifum í nú- tíðinni og framtíðinni. Vér eigum aðeins sögustaði til að sýna útlendingum — flestir. Og kennt hefir verið, að hvorki eigi að bjóða né banna börn- um og unglingum — annars fengju þeir minnimáttarkennd, yrðu bældir. Og þá fara þeir að vonum sínu fram, þarna sem annars staðar. Og það, sem vér óvirðum sjálf, er engin von til að útlendir menn sýni virðingu. Það verður ekki hreinsað til á Þingvöllum, nema þjóðinni finnist, að méð slíku framferði og lýst hefir verið sé verið að brenna helga jörð með svívirðingu — og líkt og hrækja fram- an í ásjónu landsins. Gunnar Árnason.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.