Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1961, Qupperneq 28

Kirkjuritið - 01.11.1961, Qupperneq 28
410 KIRKJURITIÐ trúarinnar á Guð vilja menn setja trúna á flokkinn og óskeikul- leik hans. „Die Partei liat immer reelit“ — Flokkurinn hefur ávallt á réttu að standa. Eftir þeim upplýsingum, sem fyrir hendi eru bendir þó ýmislegt til þess, að ekki gangi eins lirukkulaust í Ungverja- landi og Austur-Þýzkalandi að byggja upp kommúnistiska „mótkirkju“. Ungversk blöð kvarta a. m. k. yfir því, að mikið skorti sums staðar á, að yfirvöldin sýni nægilegan áhuga á að innleiða „betri samfélagssiðu“. 1 Búdapestblaðinu „Nepszawa“ er t. d. frásögn af „leiðu atviki“, þar sem kvennaráð staðarins og yfirvöldin í bæ einum höfðu lagt „skriffinnskukenndar“ liindranir í veg fyrir socialistiska útför konu eins flokksmanns- ins. Flokksforystan gefst þó að sjálfsögðu ekki upp fyrir slíku og notar m. a. „Félagið til útbreiðslu upplýsingarinnar“ til þess að hamra guðleysisáróður óaflátanlega inn í vitund fólksins, og haldið er fast við markmiðið, — að útrýma kristindóminum sem „skaðsamlegum leifum fortíðarinnar“. Héraðsstjórnirnar fá stöðugt kröftugar áminningar um að vinna afsláttarlaust að framgangi „nýsköpunarinnar“. Einnig í sjálfum Sovétríkjunum, — hinni miklu fyrirmynd allra kommúnistiskra landa, — hafa menn (jafnvel enn svo löngu eftir byltinguna) greinilega hliðsjón af kirkjunni, þegar um er að ræða fyrirkomulag socialistiskra hátíða. Frétt þaðan að austan greindi frá því um áramótin síðustu, að í Moskvu hafi gömul aðalshöll frá 13. öld nú verið útbúin sem „brúðkaupshöll“, og ástæðan til þessarar framkvæmdar er sú, að svo margar kvartanir liafi borizt yfir því, að borgara- leg vígsla liafi jafnan verið sviplítil athöfn, -— og að kommún- isminn þoli á þessu sviði engan samanburð við þann liátíð- leika, sem kirkjan setji á lijónavígsluna. Af sömu ástæðum sáu menn sig þegar á síðastliðnu ári tilneydda til þess í Leningrad, að útbúa svipaða viðhafnarhöll fyrir hjónavígslur og nú er til komin í höfuðstaðnum, og að líkindum verður þessu fordæmi fylgt víðar í Rússlandi. Kommúnistum er nefnilega alveg Ijóst, að fólkið vill ekki aðeins hafa brauð, heldur og leiki, — og fvrir þeim er þá séð, en þess vandlega gætt að merkisatburðir og hátíðir liafi ekkert kristilegt inntak. Þetta á t. d. við um jólin. Því að eins og svo einkennandi var

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.