Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 48

Kirkjuritið - 01.11.1961, Side 48
ERLENDAR F R É T T I R Dr. Karl Barth, prófessor í Sviss, er nú 75 ára og verð'ur aft' leggja niður embætti sitt. Háskólinn í Basel óskaði að dr. Helmuth Gollwitzer, kuniiur guðfræðingur yrði eftirmaður hans. Hann er nú stríðsfangi í Rúss- landi. En ákveðnar raddir hafa mótmælt því af pólitískum ástæðum. Talið er að Gollwitz.er sé á vissan hátt hlyntur kommúnisma. Hefur fulln- aðarákvörðun verið frestað í málinu. Gerð hefur veriö geysi dýr og mikil kvikmynd af Barrabasi út frá sögn sænska Nóbelsverðlaunaskáldsins, Piir Lagerquists. Slikar bihlíumyndir •— og sögur eru nú i tizku og benda til þess, að Biblían hefur meira aðdrátt- arafl en margur hyggur. A heimskirkjuþingi Meþódista, sem lialdið var í Osló í september, var Fred Corson, biskup í Fíladelfíu kosinn forseti kirkjufélagsins í stað dr. Harolds Roberts í Englandi, sem gegndi því embætti áður. Trúboósfélag endurskirenda hefur látið dreifa áskorun til ensku kirkju- félaganna, að hefjast handa um mótinæli og mótaðgerðir sakir óverjandi grimmdar og siðlausra aðfara Portúgala í Angóla. Telja þeir að tugir þúsunda manna hafi verið af lífi teknir og einnig orðið að þola fáheyrðar pyndingar sakir þeirrar frelsishreyfingar ,sein liafist hefur í landinu. Nýlega voru 12 kaþólskir menn, handteknir í Ungverjalandi og hnepptir í fangelsi. Þeim var gefið að sök að þeir væru með undirróður gegn ríkinu í þeiin tilgangi að koma á kristnu lýðræði. HeimatrúboSiS danska átti aldarafmæli 13. sept. s. 1. Lengst af þcss tíma hefur það verið sterkasta stefnan innan kirkjunnar og er svo enn. Kennd hefur hún verið við allmikla þröngsýni oft og tíðum og verður það ekki með öllu af henni skafið. En marga ágæta forvígismenn hefur hún átt svo sem Vilhelm Beek og C. Bartholdy, sem enn cr lífs. Og lengi fram- an af var hún áhrifamikil vakningarhreyfing, ekki aðeins í trúarlegu til- liti heldur og kristilcgu lífi. I tilefni af aldarafmælinu skrifar Baun biskup í Vébjörgum m. a.: — Eg efast uni að nokkur stefna innan dönsku kirkjunnar hafi verið jafn lieitt elskuð og hötuð og heimatrúboðið. Þetta sést af því að þrátt fyrir allar skannnirnar undanfarin 40 ár befur safnast undir það bálf milljóii króna í afmælissjóð. . . . En óhjákvæmilegt er að viðurkenna, að svo hefur farið um heima- trúhoðið, sem aðrar andlegar stefnur, að það liefur snúist upp i stofnun og stirðnað í forniiini. Starfsemin gengur að vísu sinn gang, fundarhöldin

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.