Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 6
148
KIRKJURITIÐ
um borð, án þess aft skipsliöfninni yjði kunnugt um veiki
hennar. En þegar það varS Ijóst, var um seinan a3 reka fjöl-
skylduna frá borði, því að þá var komið út á rúmsjó. Þegar
til Lúbeck kom, varð bið sjúka fólk að fara þar á sjúkrabús.
En loks þegar Flath-fjölskyldan var ferðafær, var liún flutt
til Kiel. Flóttinn frá Rússlandi liafði heppnazt. En þar með
var þó ekki allt fengið. Þýzkaland var lamað eftir hina geig-
vænlegu styrjöld, sem nýlega var afstaðin.
Þegar hér var komið, var Otto Flath orðinn 13 ára. Allt
var nýtt fyrir honum í þessu nýja föðurlandi hans. Það hafði
mikil áhrif á skapferli lians og lundarfar, en einnig á síðari
ára listsköpun lians. Hann fór í skóla í Melsdorf. Hann var
fermdur í Flemlnide 1922. Síðan fór liann til náms lijá Karli
Schneider, fílabeinsskurðmeistara í Kiel. Já, hann var sannar-
lega ekki á sama staðnum á æskuárum sínum. En nú var hann
sern sagt kominn til listamanns, sem kennt gat honum meira
en flestir aðrir í skurðlistinni. Það hafði snemma komið
greinilega í ljós, að Otto var skurðhagur. Og nú var hann
kominn til náms. En kaldhæðin kreppan stóð yfir. Fyrst eftir
að náminu lauk, liafði Otto talsvert að gera, en svo sagði
kreppan til sín. Köldum krumlunum tók hún um hinn unga
listamann og keyrði liann inn í skuggakima atvinnuleysisins.