Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 9

Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 9
KIRKJURITIÐ 151 fyrir þessu altari, ekki eingöngu vegna þess, hversu undursam- lega það er gert, heldur fyrst og fremst vegna þeirrar kær- leiksdýptar, sem listaverkið boðar. 2. „Der Verkundigungs-Altar“ er gert á árinu 1957. Það er einnig gert að mestu úr linditré. Hæð þess er 4,80 metrar, en breiddin 6 metrar. Það er nú í Frelsarakapellunni í Alt- Garge/Elbe. Það er auðvitað fullkomin ástæða til þess að listamaðurinn sé þannig lítillega kynntur. 1 skurðlist sinni minnir hann mig niikið á bina frábæru böggmyndalist íslendingsins Einars Jónssonar. Báðir túlka þeir tign og kærleika Krists og lyfta hugum áhorfendanna upp yfir mold og myrkur, til eilífs ljóss og lífs. Maður þarf ekki að liafa verið í neinum bænarhug, er nianni verður l'tið til stjarnanna og finnst næstum óhjákvæmilegt að láta fallast til Jarðar í orðlausri tilheiðslu. — Edith Södergran. Hleypidómarnir gegn Guði eru þeir, sem erfiðast er að sigrast á. — Edith Södergran. Mennirnir ættu sér engrar hjargar von, ef allar bænir þeirra væru heyrðar. — Kristina. Speki heimsins kann að reynast heimska á himni. Af því leiðir þó ekki að heimska veraldarinnar þurfi endilega að vera vizka himnanna eins og suinir „rétttrúarmenn" virðast halda fram. — Viktor Rydberg. Nú á dögum 6tanda allir víghúnir í öllum löndum. Menn vaka hver J'fir öðrum, óttast hverir aðra, og leitast við að grafast fyrir það hvert ríkið sé nú skelfdazt. Alls staðar hlasir vanmátturinn við augum og eng- uin veit hvað hann í rauninni vill eða verður að gera.. — Kristina (1626—89). Iðni manna við að ræða bresti náungans stafar mest af því hvað þeint er ógjarnt að leiða liugann að sínum eigin. — Ola Hanssen. Það eina, sem getur kæft hárey6ti heimsins — er þögnin. — Vilhelm Ekelund.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.