Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 43

Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 43
KIRKJURITIÐ J35 Upp frá þessu gat faðir Pire aldrei lirint frá sér umliugsun- inni um „þetta djúpstæða graftarkýli“. Fyrsta skrefið, sem liann tók, var að koma upp hópi styrktar- manna til að senda „eftirlegukindunum“ vinarbréf og gjafir. Næst breytti hann brauðsölubúð í Huy í liæli fyrir aldraða flóttamenn og jók síðan tölu slíkra liæla eftir því sem ústæður leyfðu. Varð þetta stofninn að fyrsta „Evrópuþorpi“ föður Pire í Aix-la-Cbapelle í Þýzkalandi. En það var sjálfstætt smá- býsabverfi, þar sem flóttamannafjölskyldum var veitt færi á að byrja lífið á nýjan leik. Þeir fengu að annast eigin beimili, og liafa ofan af fyrir sér með hinum og þessum störfum í þágu samfélagsins. Dýrasta eignin til að byrja með var póstkassinn á húshliðinni, tákn þess að nú befðu þeir loksins endurheimt samastað og utanáskrift. Mörg vandamál spruttu upp. Nauðsyn bar til að sætta ná- grannana við „þessa óboðnu gesti“. Afla varð fjár bæði til að reisa húsin og búa þau gögnum, og það þurfti að velja íbúana úr mörgum þúsundum. Og þótt nýbyggjarnir væru seztir að, var ótal margt óleyst. Annað Evrópuþorpið í röðinni reisti faðir Pire í Bregenz í Austurríki 1956, hið þriðja í Bavaríu 1957. Tvö, sem stofnsett voru 1957, voru heitin eftir miklurn mannvinum. Annað þeirra er Friðþjófs Nansens þorpið í Bercliem-Sainte-Agathe í Belgíu, en liitt Alberts Scliweitzers þorpið í Spiesen í Saar. Otto F rank og kona lians, sem bæði böfðu fengið að kenna á fanga- búðavistinni, voru viðstödd vígslu sjötta þorpsins, sem nefnt var eftir önnu, dóttur þeirra, árið 1959. Það er í Wupertal í Þýzkalandi. Sjöunda þorpið er líka í Þýzkalandi og kallað eftir Antoine de Saint-Exupery, sem er einn af eftirlætisgoðum föður Pire. Þetta fyrirtæki föður Pire hefur þróazt í samtök, sem nefn- ast „Opinn faðmur mót alheimi“. Sókn Pire nær langt ul fyrir Evrópu, m. a. hefur liaun verið kvaddur til Mið- og Austur- Asíu til umbóta á högum flóttamanna. „Ég er óháður öllurn landamærum“, segir liann. „Ég berst gegn öllum girðingum, hleypidómum og stöðnuðum þjóðfélagsskoðunum. Eini sam- nefuarinn er hið margskipta mannkyn. Mér er ekkert í mun

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.