Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 44

Kirkjuritið - 01.04.1962, Blaðsíða 44
186 KIRKJURITIB að snúa mönnum til minnar stefnu, rómversk-kaþólskunnar. Takmark mitt er að leggja ljós- og ástúðarbrú yfir hin æðandi vötn heimsvaldastefna, andheimsvaldastefna og kynþátta- haturs“. „Opinn faðmur mót alheimi“ hefur bækistöðvar sínar í húsi nokkru í Rue de Marche 45 í Huy. Eru þar margir menn að verki. Á neðstu hæðinni eru fata- og malvælabirgðir. Á annarri og þriðju hæð eru mikil skjalasöfn um flóttamenn, sem gjarn- an vilja komast þangað, sem þeim er veitt góðfúsleg viðtaka og lýsingar á ótal gamalmennum, sem engum eru aufúsugestir og „almennir borgarar hafa gleymt að væru til“. „Opinn faðmur mót alheími“ krefst mikils fjár. „Ég á enga styrktarsjóði né nýt heldur fastra tekna“, segir faðir Pire. „Ég neyðist því til að eyða tveim þriðju af tíma mínum í fjár- söfnun. Það kostar 60.000 belgíska franka að koma fótunum undir livern hælisleysingja“. En umhugsun prestsins beinist ekki aðeins að flóttamönnunum, lieldur þjóðfélaginu, sem veigrar sér við að hjóða þeim hælisvist. Hann er í senn æðru- laus spámaður og slunginn fjármálamaður, þegar liann ávarpar borgarráðin, velgerðarfélögin og hina og þessa borgara í þeim vændum að tala máli flóttamannanna og annarra skjólstæð- inga sinna. Faðir Pire veit fullvel að athliafnaþránni liættir til að sljóvg- ast, þótt lmn kunni að blossa snöggvast upp í brjósti áheyr- endanna. Þess vegna dregur hann ósjaldan upp spjald úr hvít- um hempuvasanum, sem á er letrað nafn og heimilisfang, og afhendir það væntanlegum stuðningsmanni. „Viltu ekki senda þessum vesalingi nokkrar línur?“ spyr liann. Oft ber slíkt bréf ríkulega ávexti. Og eftir einn fundinn skrifaði Þjóðverji hon- um eftirfarandi: „Ég var hermaður á rússnesku vígstöðvunum í fimm mánuði. Við ullum miklum þjáningum þar í landi. lítvegaðu mér rússneskt fósturbarn“. (G. Á. ísl.).

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.